Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu

„Þrátt fyrir að þær upp­lýs­ingar liggi fyrir virð­ist Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir standa keik í afneitun sinni.“

Saka dómsmálaráðherra um lygar í máli rússneskrar fjölskyldu
Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir Dóms­mála­ráð­herra er sak­aður um lygar Mynd: Víkingur

Samtökin No Borders Iceland segja full­yrð­ingar Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, rangar í máli rúss­neskrar fjöl­skyldu sem nýlega var vísað úr landi. Í frétta­til­kynn­ingu sem sam­tökin sendu frá sér í gær­kvöldi eru taldar upp fimm ástæður fyrir því að ummæli ráð­herr­ans, sem birt­ust í frétt á Vísi í gær, stand­ist ekki.

Í sam­tali við Vísi sagði Þorbjörg Sigríður meðal ann­ars: „Þar [Í Króatíu] þykir máls­með­ferð vönduð laga­lega og upp­fylla skil­yrði sem gerð eru sam­kvæmt mann­rétt­inda­sátt­málum og það er af þeirri ástæðu sem útlend­inga­stofnun og kæru­nefnd útlend­inga­mála fara í það á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerðar að senda málið þangað þar sem það fær sína máls­með­ferð.“

Í til­kynn­ing­unni segir að mann­rétt­inda­sam­tök í Króatíu hafi þegar greint frá því að fjöl­skyldan hafi sætt „ómann­úð­legri og van­virð­andi með­ferð“ í varð­haldi þar í landi í des­em­ber 2024. No Borders Iceland bendir á að slíkar upp­lýs­ingar stang­ist beint á við þá mynd sem ráð­herra hafi dregið upp af mál­inu.

Samtökin gagn­rýna einnig harð­lega að alvar­lega veik móðir hafi verið skilin eftir ein með umsjá þriggja barna, þar á meðal nýfæddra tví­bura, á meðan eig­in­maður hennar og barns­föður var haldið í lok­uðu brott­far­ar­úr­ræði. Slík með­ferð geti að þeirra mati með engu móti talist mann­úð­leg.

Þá kemur fram að fjöl­skyldu­fað­ir­inn hafi verið beittur hót­unum um lík­ams­meið­ingar í varð­haldi í Króatíu, meðal ann­ars af hálfu full­trúa örygg­is­þjón­ustu stjórn­valda. Samkvæmt til­kynn­ing­unni var ástandið í varð­hald­inu svo alvar­legt að 55 ein­stak­lingar frá Norður-Kákasus­svæð­inu hófu hung­ur­verk­fall til að mót­mæla með­ferð­inni.

No Borders Iceland varar einnig við því að fjöl­skyldan eigi litla sem enga mögu­leika á að fá alþjóð­lega vernd í Króatíu. Amnesty International hafi for­dæmt stjórn­völd þar í landi fyrir ómann­úð­lega með­ferð á rúss­neskum umsækj­endum um vernd og tölur úr AIDA-gagna­grunn­inum bendi til þess að eng­inn rúss­neskur rík­is­borg­ari hafi fengið vernd í Króatíu árið 2024, ári áður hafi 8.000 Rússar sótt um hæli þar í landi en aðeins 23 fengið vernd. Samtökin telja því yfir­vof­andi hættu á að fjöl­skyldan verði að lokum send aftur til Rúss­lands.

Að lokum segir í til­kynn­ing­unni að Útlend­inga­stofnun hafi þegar verið „gerð aft­ur­reka um lygar“ í máli fjöl­skyld­unnar. Vísað er til yfir­lýs­ingar á vef island.is frá 7. októ­ber 2025 sem sam­tökin segja að hafi inni­haldið rangar full­yrð­ingar, sem síðar hafi verið afsann­aðar. Þrátt fyrir að nú liggi fyrir gögn um ómann­úð­lega með­ferð í Króatíu, segj­ast sam­tökin undr­ast að dóms­mála­ráð­herra haldi áfram að hafna þeirri gagn­rýni.

„Þrátt fyrir að þær upp­lýs­ingar liggi fyrir virð­ist Þorbjörg Sigríður Gunn­laugs­dóttir standa keik í afneitun sinni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi