Jódís Skúladóttir
„Ég nenni ekki að hlusta á þennan tappa snúa út úr orðum mínum“
Jódís Skúladóttir
Skoðun

Ég fór til vinnu – ekki til að missa heils­una

Pólitík

„Ef það má bjóða ein­hverjum bit­urð og kven­fyr­ir­litn­ingu, endi­lega lesið Moggann í dag“

Minning

Lárus Heið­ars­son lát­inn

Fólk

Líf á mörkum friðar og átaka

Heimur

Jessica Delfino segir Russell Brand hafa ítrekað boðið sér heim til sín

Innlent

„Það er alls ekki hryðju­verk að hleypa dýrum út“

Minning

Sæmi Rokk er fall­inn frá

Heimur

Alanis Moris­sette kemur út sem pankyn­hneigð

Frétt

„Vændi snýst um sam­fé­lagið í heild“

Heimur

Stakk nágranna sinn í brjóstið eftir deilur um lausan hund

Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega

„Er það þetta sem við viljum?“

Valur gagnrýnir íslensk yfirvöld harðlega
Tví­bura­syst­urnar Rúss­nesku fjöl­skyld­unni hefur verið tvístrað Mynd: Facebook

Sagn­fræð­ing­ur­inn Valur Gunn­ars­son hefur birt harð­orða Facebook-færslu þar sem hann gagn­rýnir ákvörðun íslenskra stjórn­valda um að vísa rúss­neskri fjöl­skyldu úr landi, þrátt fyrir að fað­ir­inn hafi setið í fang­elsi fyrir andóf gegn stjórn­völdum í Rúss­landi og að móð­irin sitji nú ein uppi með unga tví­bura í óvissu. Valur segir Ísland hafa brugð­ist í máli fjöl­skyld­unnar og spyr hvort þjóðin hafi í raun kosið að taka að sér „skúrks­hlut­verkið“ í þess­ari sögu.

Valur, sem meðal ann­ars dvaldi í Úkraínu í upp­hafi stríðs­ins þar, skrif­aði harð­orða Facebook-færslu vegna fréttar Vísis um hjónin Gadzhi Gadzhiev og Mariiam Taimova, sem eru upp­runa­lega frá Rúss­landi og flúðu þaðan eftir að Gadzhiev hafði setið í fang­elsi fyrir að mót­mæla stjórn­völdum í Rúss­landi. Samkvæmt frétt­inni hefur fjöl­skyldan verið sundruð eftir að íslensk yfir­völd ákváðu að reka fjöl­skyld­una úr landi en þau höfðu sótt um hæli hér á Íslandi. Voru þau send til Króatíu, þar sem þau höfðu haft við­komu á leið sinni til Íslands. Faðirinn er nú í hung­ur­verk­falli á meðan eig­in­kona hans er ein með unga tví­bura þeirra.

Í upp­hafi færslu Vals fer hann yfir upp­haf máls­ins:

„Gadzhi Gadzhiev eyddi fimm árum í fang­elsi í Síberíu fyrir að mót­mæla morð­óðum stjórn­völdum í Moskvu. Þegar hann kom út tókst honum að fara til Tyrk­lands á nýjum skil­ríkíkjum ásamt konu og barni. Þaðan fóru þau í gengum Króatíu til Íslands, þar sem syst­ini hans og móðir biðu og höfðu þegar fengið vernd. Ofan á allt fædd­ust hjón­unum tví­burar. Hér hefði átt að vera ham­ingju­sami endir­inn á sög­unni. En nei.“

Segir Valur í seinni hluta færsl­unnar að yfir­völd á Íslandi hafi ákveðið að taka að sér að vera skúrkar í mál­inu og reka fjöl­skyld­una úr landi.

„Íslensk yfir­völd ákváðu nú að taka skúrks­hlut­verkið að sér. Fjöl­skyldan var rekin úr landi, þar á meðal tví­burarnir nýfæddir á Íslandi. Faðirinn er nú í hung­ur­verk­falli á flótta­manna­mið­stöð í Króatíu. Ekki er alveg víst hvar móð­irin er, en tví­burarnir eru enn vega­bréfs­lausir og því í réttind­ar­legu limbó. Einhvern veg­inn finnst manni eins og það hefði ekki kostað Ísland svo ýkja mikið að vera góðu gæj­arnir í sögu þess­ari. Er það þetta sem við viljum?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

2
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Kristrún segir ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi

„Sambandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“
Fólk

Garðar var sendur til Kabúl eftir árás­ina í Kjúklinga­stræti

Heimur

Þjóðerni fórn­ar­lamba skotárás­ar­innar í Kraká stað­fest

Innlent

Tveir rot­uðu mann í miðbæ Reykja­víkur

Heimur

Hand­tek­inn eftir að hafa brot­ist inn á lóð LeBron James

Innlent

Innlent

Ökumaður ók á tvo ljósastaura og umferð­ar­eyju

Alls voru 78 mál bókuð hjá lögreglu á tólf klukkustundum. Sex einstaklingar gistu fangageymslur.
Innlent

For­eldrar Hönnuh Jane neita að kalla harm­leik­inn á Krýsu­vík­ur­vegi slys

Innlent

Brennu­varg­arnir í Sorpu komnir aftur á stjá

Innlent

MAST segir að aðgerðir vegna dýra­vel­ferðar megi ekki auka þján­ingar dýra

Innlent

Einar Logi birtir mynd­band úr inn­broti sínu hjá Stjörnu­grís

Innlent

„Það var mjög sárt og nið­ur­lægj­andi að sjá mynd af mér not­aða með þessum hætti“