Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi

„Það má aldrei verða að Ísland ger­ist aðili að IHRA.“

Segir þrýsting Ísraela aukast á Íslandi
Kristinn Hrafns­son Rit­stjór­inn varar við áróðri Ísraela

Kristinn Hrafns­son, rit­stjóri WikiLeaks, segir að nú geisi „stríð um efn­isveitur og vett­vang umræð­unnar“ þar sem mark­visst sé reynt að ná yfir­ráðum yfir net­rým­inu. Í Facebook-færslu sem hann birti í kvöld tengir hann þessa þróun við yfir­lýstan vilja „Ísra­elista“ til að hafa stjórn á umræðu á net­inu og nefnir sér­stak­lega eig­enda­skipti á TikTok sem dæmi.

„Nú ríkir stríð um efn­isveitur og vett­vang umræð­unnar. Það stríð skal skoðað í ljósi yfir­lýs­inga Ísra­elista um nauð­syn þess að taka völdin í net­rým­inu,“ skrifar Kristinn. Hann segir einn lið í því stríði vera að „þeirra maður, Larry Ellison, næst­rík­asti maður heims, fer fyrir hópi þeirra sem tóku yfir eign­ar­stjórn á TikTok eftir að Kín­verjar voru þving­aðir til sölu.“

Kristinn segir not­endur þegar vera farnir að finna fyrir breyt­ingum: „Í vik­unni fóru not­endur að finna fyrir rit­skoðun og skugga­banni og í kjöl­farið flykkt­ist fólk á nýjan – nán­ast óþekktan vett­vang – UpScrolled. Milljón not­endur bætt­ust þar við á par dögum.“

Aukinn þrýstingur á Íslandi

Að mati Kristins er sam­bæri­legur áróður nú orð­inn sýni­legri hér á landi. „Hér heima er þrýst­ingur og áróður Ísra­elista að verða aug­ljós­ari,“ skrifar hann og nefnir sem dæmi fréttir sem hann segir plant­aðar, meðal ann­ars full­yrð­ingar um að gyð­ingar í Reykja­vík þori ekki að setja ljósa­stjaka í glugga fyrir jólin.

„Hann birt­ist í plönt­uðum fréttum eins og þeim að gyð­ingar í Reykja­vík þori ekki að setja gyð­ing­lega ljósa­stjaka út í glugga fyrir jólin. Það var lélegur brand­ari (sjá mynd frá Laug­ar­vegi),“ skrifar Kristinn og vísar þar í ljós­mynd sem hann birtir með færsl­unni.

Hann gagn­rýnir jafn­framt harð­lega til­lögur starfs­hóps á vegum for­sæt­is­ráð­herra um að gera afneitun helfar­ar­innar refsi­verða. „Það var hins vegar ekk­ert fyndið við til­lögur starfs­hóps for­sæt­is­ráð­herra sem lagði til að gera afneitun helfarar gyð­inga refsi­verða. Það er ein­fald­lega ekki rétt að gera fávita­hátt að hegn­ing­ar­laga­broti.“

Varar við aðild Íslands að IHRA

Kristinn segir að enn alvar­legri hafi verið til­laga um að Ísland gengi í International Holocaust Remembrance Alliance. Hann segir að í skýrslu starfs­hóps­ins hafi verið látið ósagt að skil­grein­ingar IHRA á gyð­inga­hatri hafi verið not­aðar sem póli­tískt vopn.

„Hin til­lagan var verri en hún fól í sér að Ísland gengi í IHRA … en ósagt var í skýrslu starfs­hóps­ins að við­mið IHRA um hvað telst gyð­inga­hatur hefur verið vopn Ísra­elista til að kæfa gagn­rýni á stjórn­völd í Ísrael meðal ann­ars fyrir hel­för­ina gegn Palest­ínu­mönnum,“ skrifar hann og bætir við: „Það má aldrei verða að Ísland ger­ist aðili að IHRA.“

„Lágkúrugull liðinnar viku“

Að lokum beinir Kristinn spjótum sínum að ummælum vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um Palest­ínu­menn. Hann segir þau hafa verið botn­inn á umræðu vik­unnar.

„Rétt að nefna í þessum pakka heimsku­leg ummæli vara­for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins um Palest­ínu­menn sem eigi að senda heim í „frið­inn“ . Það var lág­kúr­ugull lið­innar viku í póli­tík­inni – þrátt fyrir harða sam­keppni,“ skrifar Kristinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina