Í gær var karlmaður á fimmtugsalri dæmdur til fimmtán mánaða fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðsbundin, fyrir að áreita átta stúlkur, sem allar voru 13 ára eða yngri, kynferðislega á samfélagsmiðlinum Snapchat.
Maðurinn neitaði sök og sagðist hafa verið að grínast og að valdefla stelpurnar. Skilaboðin sendi maðurinn á árunum 2021 og 2022.
Maðurinn hefur ekki gerst brotlegur áður en langur tími leið frá því að rannsókn málsins lauk og þar til það var ákært í málinu. Hjálpar það manninum þegar kemur að dóminum. Var ákveðið að 12 af 15 mánuðum yrðu skilorðsbundnir og falli það niður haldi hann skilorði í þrjú ár.
Athygli vekur að búið er að fjarlægja nafn mannsins úr dómnum en upphaflega var það hluti af honum þegar dómurinn var birtur á heimasíðu Héraðsdóms Reykjaness.































Athugasemdir