Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna gagnrýnir gleymsku samtímans

„Ef ég vil muna stuðn­ing Biden við sál­sjúku barna­morð­ingj­ana í Jer­úsalem er ég þá að auli sem skil ekki hvað Trump er hættu­legur?“

Sólveig Anna gagnrýnir gleymsku samtímans
Sólveig Anna Jóns­dóttir Sólveig Anna veltir fyrir sér minnis­leysi sam­tím­ans Mynd: Bára Huld Beck

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, deildi í gær löngum og per­sónu­legum hug­leið­ingum á Facebook þar sem hún rifjar upp reiði sína og van­mátt gagn­vart utan­rík­is­stefnu Banda­ríkj­anna á síð­ustu ára­tugum. Tilefnið er draumur sem hún seg­ist hafa fengið um George W. Bush, fyrr­ver­andi for­seta Banda­ríkj­anna, sem hún telur bera ábyrgð á fjöldamorðum, pynt­ingum og inn­rásum í nafni heims­veld­is­ins Banda­ríkj­anna.

„Mig dreymdi GWB í nótt. Hann hafði fyr­ir­skipað að ein­hver yrði kyrktur – ég komst í mikið upp­nám og sagð­ist ætla að kyrkja hann,“ skrifar Sólveig Anna og segir draum­inn senni­lega tengj­ast lestri hennar á bók­inni The Obama Syndrome eftir Tariq Ali.

Hún lýsir því hvernig hug­ur­inn hafi dregið hana „ofan í við­bjóðs­lega kjall­ara morð­ingja og pynt­ara heims­veld­is­ins“ og rifjar upp þá reiði sem hún upp­lifði árum saman vegna „getu­leysis míns til að gera nokkuð til að stoppa hryll­ing­inn.“

Ísland og þátttaka í stríðum

Sólveig Anna seg­ist hafa upp­lifað síð­asta alvöru „bræðis-kastið“ þegar Ísland, undir stjórn vinstri flokka, studdi svo­kall­aða R2P-kenn­ingu og tók þátt í loft­ferða­banni yfir Líbíu.

„Síðasta alvöru bræðis-kastið sem ég fékk var þegar Ísland undir stjórn vinstri flokk­anna sagð­ist hafa R2P og tók þátt í svoköll­uðu loft­ferða­banni á Líbíu sem hafði þær afleið­ingar að hrein upp­lausn lagð­ist yfir landið og ríkir þar enn,“ skrifar hún.

Hún seg­ist þá hafa orðið „í alvöru full­orðin í utan­rík­is­málum“ og dregur þá ályktun að íslensk stjórn­völd lúti á end­anum alltaf raun­veru­legu yfir­valdi.

„Á end­anum munu öll sem kom­ast til valda í lýð­veld­inu kasta sér niður frammi fyrir hinu raun­veru­lega yfir­valdi og skip­unum úr her­búðum þess. Engin mun standa upp­rétt – engin mun fær um öfga­leysi í fram­komu við fjar­læg lönd og þjóðir.“

Gagnrýni á „öfgaleysi“ og sögulegt minnisleysi

Sólveig Anna seg­ist hafa rifjað upp þessa hluti í kjöl­far við­tals við for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins þar sem hann lýsir flokknum sem flokki öfga­leysis.

„Ég minnti mynd­ina af for­mann­inum á þátt­töku Íslands í glæpa-inn­rás Ameríku í Írak 2003, sem öfga­lausi flokk­ur­inn hans studdi ásamt vinum sínum í öfga­lausa Sjálf­stæð­is­flokknum,“ skrifar hún.

Hún veltir því fyrir sér hvers vegna fólk verði reitt eða háðsk þegar minnt er á glæpi Banda­ríkj­anna, bæði fyrir og eftir valda­töku Donalds Trump.

„GWB ber ábyrgð á fleiri morðum og meiri pynt­ingum en Trump – ef ég vil muna glæpi GWB er ég þá sek um að gera lítið úr geð­veiki og níhíl­isma Trump?“ spyr hún og bætir við: „Ef ég vil muna stuðn­ing Biden við sál­sjúku barna­morð­ingj­ana í Jer­úsalem er ég þá að auli sem skil ekki hvað Trump er hættu­legur? Ef ég segi að ekk­ert land annað en Ameríka hafi kastað kjarn­orku­sprengju í fólk, ef ég segi að Ameríka hafi drepið alla­vega milljón, senni­lega tvær, mögu­lega þrjár millj­ónir Víetnama - er ég þá sek um að breiða yfir stað­reynd­irnar um útþennslu­stefnu Trump og inn­an­lands­glæpi?.“

Abu Ghraib, Víetnam og Hiroshima

Í færsl­unni tengir Sólveig Anna saman sögu­legar myndir af ofbeldi Banda­ríkj­anna, allt frá Víetnam til Íraks.

„Erum við ekki nægi­lega góð í að berj­ast gegn fasískri til­hneig­ingu sam­tím­ans ef við viljum rifja upp Abu Ghraib – ef að mynd­irnar þaðan eru geymdar í skúffu í heil­anum á okkur, rétt eins og mynd­irnar af napalm-börn­unum í Víetnam eða öskustónni Hiros­hima,“ skrifar hún.

Hún lýsir því hvernig þessar minn­ingar snúi aftur, jafn­vel í draumum.

„Heilinn opnar stundum skúff­urnar um nætur og minnir okkur á inni­haldið – minnir okkur á GWB að pynta fólk í dýflissu og við vöknum með gömlu, þungu til­finn­ing­una í hjart­anu og þrýst­ing undir augn­lok­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina