Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar

„Er Ís­land réttar­ríki?“

Gagnrýnir harðlega drátt í sakamáli vegna andláts móður sinnar
Eva Hauks­dóttir Eva Hauks­dóttir vill fá svör Mynd: Facebook

Lög­mað­ur­inn Eva Hauks­dóttir gagn­rýnir harð­lega langan máls­með­ferð­ar­tíma hjá lög­reglu og Hér­aðs­sak­sókn­ari í máli sem varðar dauða móður hennar, sem lést á Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja í októ­ber 2019. Þetta kemur fram í pistli hennar sem birt­ist á Vísir í dag en í fyr­ir­sögn­inni spyr hún: „Er Ís­land réttar­ríki?“ Mannlíf hefur í gegnum tíð­ina fjallað gaum­gæfi­lega um málið.

Eva segir að liðin séu fimm ár frá því að hún og systk­ini hennar lögðu fram kæru á hendur þremur heil­brigð­is­starfs­mönnum vegna með­ferðar móður þeirra. Kæran hafi verið lögð fram í kjöl­far álits Embætti land­læknis frá 17. febr­úar 2021, þar sem kom­ist var að þeirri nið­ur­stöðu að móðir hennar hefði verið sett á ótíma­bæra lífsloka­með­ferð sem lík­lega hefði flýtt fyrir and­láti hennar.

Sjá einnig: Ekki enn búið að ákveða hvort kæra eigi dr. Skúla Tómas – Grunaður um sex mann­dráp

Sjá einnig: Móðir Óla var sjúk­lingur Skúla: „Þú ert að fremja morð hérna beint fyrir framan okkur“

Eva vitnar orð­rétt í nið­ur­stöðu land­læknis þar sem segir meðal ann­ars:

„Meðferð DJ frá fyrsta degi síð­ustu leg­unnar [var] í eðli sínu sam­svar­andi lífsloka­með­ferð að eðli og fram­kvæmd. […] virð­ist áhersla með­ferðar fyrst og fremst hafa verið á að bæla og slæva og hvers kyns eft­ir­liti með ástandi hennar eða lífs­uppi­hald­andi með­ferð hætt.“ Þá segir enn fremur að þessi með­ferð hafi haft þær afleið­ingar að „í ell­efu vikna langri legu hrak­aði DJ; hún var með legu­sár, nær­ing­ar­skort og sýk­ingar allt fram til and­láts­ins, sem verður að telja lík­legt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar með­ferðar sem hún hlaut.“

Sjá einnig: Álit land­læknis á máli Skúla læknis: „Ómeð­höndl­aðar sýk­ingar kunni að hafa verið aðal dán­ar­or­sök“

Eva segir að aðstand­endur hafi fengið álitið afhent í febr­úar 2021, en síðar hafi komið í ljós að sá læknir sem bar ábyrgð á með­ferð móður hennar hafi þá þegar verið kom­inn aftur til starfa á Land­spít­al­anum, eftir tíma­bundna svipt­ingu starfs­leyfis. Hún segir hann hafa fengið tak­markað starfs­leyfi í maí 2021 og fullt starfs­leyfi um mitt ár 2024, þrátt fyrir að saka­málið væri enn til rann­sóknar.

Að sögn Evu stóð lög­reglu­rann­sókn í tæp tvö ár. Málinu var síðar vísað til hér­aðs­sak­sókn­ara snemma árs 2023. Hún segir að fjöl­skyldan hafi ítrekað leitað upp­lýs­inga um stöðu máls­ins, án árang­urs. „Þrátt fyrir að hér­aðs­sak­sókn­ari hafi haft málið til með­ferðar í þrjú ár, eftir tveggja ára lög­reglu­rann­sókn, og þótt hér­aðs­sak­sókn­ari hafi lokið sinni athugun á mál­inu fyrir ári eða svo, hefur sem sagt enn ekki verið ákveðið hvort eigi ákæra,“ skrifar hún.

Eva segir óásætt­an­legt að mál liggi árum saman án nið­ur­stöðu og bendir á að slíkur dráttur geti talist mann­rétt­inda­brot. Hún upp­lýsir jafn­framt að hún hafi sent Umboðs­maður Alþingis kvörtun 3. febr­úar síð­ast­lið­inn vegna máls­hraða og svar­leysis.

Í lok pistils­ins setur Eva spurn­ing­ar­merki við getu íslenska rík­is­ins til að standa undir grund­vall­ar­reglum rétt­ar­rík­is­ins. „Ef íslenska ríkið hefur ekki bol­magn til þess að halda uppi stjórn­sýslu sem sam­ræm­ist grund­vall­ar­reglum rétt­ar­ríkis þá er Ísland ekki rétt­ar­ríki,“ skrifar hún og bætir við: „Og þá vaknar sú spurn­ing hvort við værum betur sett undir stjórn ann­arra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina