Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hann kunni ekki að biðja um hjálp“

Anton Ísak missti föður sinn.

„Hann kunni ekki að biðja um hjálp“
Anton Ísak Ósk­ars­son Lista­mað­ur­inn hefur opnað sig um sjálfs­víg föður síns og leið­ina áfram. Mynd: Sölvi Tryggva / Youtube

Anton Ísak Ósk­ars­son frum­kvöð­ull og lista­maður segir sjálfs­víg föður síns hafa fengið sig til að umturna lífi sínu á jákvæðan hátt. Anton, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, segir að áfallið hafi verið gríð­ar­legt, en hægt og rólega hafi það gert hann að marg­falt betri ein­stak­lingi.

„Þetta var í mars 2021 sem hann fyr­ir­fór sér. Hann hafði verið að glíma við alkohól­isma lengi og var mjög and­lega veikur, en leit­aði sér ekki hjálpar. Sumarið áður en þetta gerð­ist hafði hann verið í mik­illi maniu og var búinn að vera á slæmum stað, en ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hann færi þessa leið. En eftir á að hyggja sé ég að hann var alltaf á flótta og náði aldrei að tengj­ast kjarn­anum í sér raun­veru­lega. Ég held að hann hafi verið alinn upp við þá stemmn­ingu að taka þetta bara á hörkunni og að þetta væri gangur lífs­ins. Hann hafði ekki það sem þurfti til að sækja sér aðstoð og biðja um hjálp­ar­hönd. Kunni ekki að biðja um hjálp. Ég held að það sé mjög algengt að karl­menn þjá­ist í hljóði og vilji ekki vera byrði á aðra,” segir Anton.

Skildi betur hvernig honum leið

Eftir að hafa kvatt föður sinn fór Anton í sitt eigið and­lega ferða­lag.

„Þetta var rosa­legt sjokk fyrst og algjört áfall. Fyrsta hálfa til eina árið var mjög erfitt og þá lét ég þetta taka mig á slæma staði. Ég barð­ist í gegnum erf­ið­ustu dag­ana. Stundum leið mér eins og ég gæti ekki meira. En ég hélt áfram alveg sama hvað gekk á. Mér fannst ég á ákveð­inn hátt fara á sama stað og pabbi hafði verið á, sem var mjög auð­mýkj­andi, af því að það hjálp­aði mér að skilja hvernig honum hafði liðið. Mér fannst ég grípa alla hans byrði þegar hann dó og mér fannst það sem hann hafði verið að glíma við fær­ast á mig. Ég fékk að sjá sjálfan mig alveg eins og ég var og það var erfitt. Sér­stak­lega að sjá þá þætti í honum sem mér lík­aði minnst við og hvernig þeir væru líka innra með mér. Ég þurfti að læra að sætt­ast við þessa parta og vinna í þeim. Ég fór í gegnum mjög erfitt tíma­bil sem mun móta mig að eilífu. Ég fór í gegnum allan skal­ann af til­finn­ingum. Stundum var ég reiður, stundum sár, stundum sorg­mæddur, stundum tómur,” útskýrir Anton.

Anton lærði að leita að aðstoð og um leið taka stjórn­ina.

„Áföllum af þessu tagi fylgir oft rús­sí­bani af til­finn­ingum sem maður veit ekk­ert hvernig maður á að takast á við. En hægt og rólega fór ég að taka aftur stjórn­ina á eigin lífi. Í þessu ferli varð til kveikjan á ástríð­unni minni fyrir heilsu og gerði mig með­vit­aðri um mik­il­vægi hennar. Ég fór leit­aði til sál­fræð­inga og sótti mér aðstoð fag­að­ila, en það sem hjálp­aði mér mest var að vinna sjálfs­vinn­una sjálfur. Það að byrja að mæta í rækt­ina alla daga var fyrsta skrefið í að byrja að ná aftur tökum á til­ver­unni. Svo komu hægt og rólega aðrir hlutir ofan á það. Ég tók matar­æðið í gegn og ég byrj­aði að velja vel og vand­lega það fólk sem ég var í kringum og fleira sem sneri lífi mínu algjör­lega við.”

Varð trúaður

Eitt af því sem skipti sköpum í ferl­inu fyrir Anton var að finna teng­ingu við æðri mátt og öðl­ast trú.

„Það gerð­ist eitt­hvað þegar ég tók upp bibl­í­una og fór að lesa í henni. Fólk trúir því eig­in­lega ekki þegar ég lýsi því, en það er eins og ég hafi strax fengið ein­hverja teng­ingu og lífið hafi viljað ýta mér í alveg nýja átt. Gömlu vin­irnir hurfu í raun bara allir úr lífi mínu strax. Fólk hætti bara að svara mér, sama hvað ég sendi mörg sms eða hringdi. Það er eins og guð hafi bara viljað taka ákveðið fólk úr lífi mínu. Fyrst leið mér eins og ég væri að gera eitt­hvað rangt, en svo sá ég þetta þannig að lífið væri að vinna fyrir mig. Ég upp­lifði tíma­bil þar sem ég var mikið einn, sem var í raun­inni gæfu­spor því ég hafði tíma og fókus til að taka til í mínu líf. Með tím­anum kom rétta fólkið hægt og rólega inn í líf mitt og ég öðl­að­ist betri teng­ingu við Guð og fór að vinna meiri and­lega vinnu.”

Hvetur karlmenn til að tala

Anton hefur vakið athygli fyrir að deila reynslu sinni á sam­fé­lags­miðlum, þar sem hann hefur hvatt fólk, sér­stak­lega karl­menn, til að tala opin­skátt um erf­iðar til­finn­ingar og opna á það sem fólk er að ganga í gegnum.

„Ég fann köllun til deila minni reynslu og að ég ætti að nota mína lífs­reynslu til að hjálpa öðrum, en ekki bara geyma þetta allt inni í mér. Þannig að ég byrj­aði bara að galopna mig á sam­fé­lags­miðlum. Það kom allt í einu bara köllun til að lifa algjör­lega í eigin sann­leika og deila því með fólki.

„Karlmenn eru þrisvar sinnum lík­legri til að fremja sjálfs­víg og margir þeirra eru að þjást í hljóði.“

Mér leið eins og ég yrði að deila því sem ég hafði öðl­ast með öðru fólki ef ég gæti haft jákvæð áhrif með því. Það var var klár­lega langt út fyrir þæg­ind­ara­mman minn að tala af ein­lægni fyrir framan sím­ann. Það kom tals­vert mik­ill mót­vindur fyrst og margir voru að setja út á það sem ég var að gera. En ég átt­aði mig fljótt á því að það hefði ekk­ert með mig að gera. Þetta var mjög hrátt hjá mér fyrst og ég skil það alveg að ekki allir séu til­búnir í svo­leiðis, en ég ein­beitti mér bara að fólk­inu sem ég gæti mögu­lega hjálpað og þegar ég fór að fá skila­boð frá fólki sem sagði mér að mynd­böndin mín væru að hjálpa þeim átt­aði ég mig á því að það væri það eina sem skipti máli. Það er mjög mik­il­vægt að ræða hlut­ina eins og þeir eru. Karlmenn eru þrisvar sinnum lík­legri til að fremja sjálfs­víg og margir þeirra eru að þjást í hljóði. Það á ekki að vera feimn­is­mál að tala um og við eigum heldur ekki að sætta okkur við að þetta sé eðli­leg staða í nútíma sam­fé­lagi. Það vill eng­inn hafa þetta svona og við erum öll partur af breyt­ing­unni.“

Lífið er ferðalag

Anton seg­ist í dag þakk­látur fyrir það ferða­lag sem lífið hefur sett hann á og að það sé hlut­verk okkar allra að læra að snúa mót­læti upp í gjafir og búa til úr því visku og jákvæða reynslu:

„Eitt það mik­il­væg­asta er að læra að elska sjálfa sig með öllum sínum göllum og kostum. Það hjálpar manni að skilja aðra betur og tengj­ast kær­leika og sam­kennd. Það verður allt betra þegar maður byrjar að vera raun­veru­lega maður sjálfur. Þegar maður hættir að vera alltaf með grímu eða í hlut­verkum og fer að vera hrein­skil­inn og heið­ar­legur við sjálfan sig og annað fólk. Það breytir öllu. Þá er eins og alheim­ur­inn mæti manni þar og töfr­arnir byrja að ger­ast. Núna lít ég á þetta allt saman sem kennslu­stund og er þakk­látur fyrir það sem þetta ferli hefur kennt mér. Þetta hefur gert mig að sterk­ari ein­stak­lingi og miklu betri útgáfu af sjálfum mér.“

Hægt er að nálg­ast við­talið við Anton og öll við­töl og pod­köst Sölva Tryggva­sonar inni á sol­vi­tryggva.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu