Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna

„Þetta er full­kom­inn þvætt­ingur!“

Sigmundur Davíð harðneitar tengslum við MAGA-hreyfinguna
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son Sig­mundur Davíð harð­neit­aði tengslum við MAGA Mynd: RÚV-skjáskot

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins fór mik­inn í Silfrinu á RÚV í gær­kvöldi þar sem rætt var um Evr­ópu­sam­bandið og kom­andi þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald­andi við­ræður um inn­göngu í sam­bandið. Sig­mundur var ekki eini gest­ur­inn í sett­inu en full­trúar allra flokka voru þar einnig. Nokkuð fát kom á Sigmund þegar þátta­stjórn­and­inn, Berg­steinn Sig­urðs­son spurði hann út í tengsl Mið­flokks­ins við MAGA-þing­menn Repúblíkana­flokks­ins í Banda­ríkj­unum, sem Heim­ildin upp­ljóstr­aði um í nýjasta tölu­blaði sínu.

Aðdrag­and­inn að spurn­ingum þátta­stjórn­and­ans var sá að Sig­mundur Davíð beindi orðum sínum að Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra sem sat við hlið hans í Silfrinu. „Það er verið að villa um fyrir fólki og svo skreyta menn sig með svona frösum eins og „Við treystum þjóð­inni“, þegar allt sem þið hafið gert til þessa bendir til þess gagn­stæða. Hvers vegna varstu að plotta með sam­herjum þínum í Brussell, mánuð eftir mánuð eftir mánuð ...“ Þarna greip Þor­gerður Katrín og spurði hann hvað hann væri að saka sig um.

Eftir nokk­urt karp milli þeirra spyr Berg­sveinn Sigmund Davíð: „Sig­mundur, má ég spyrja að einu. Hvað með þessa frétta­skýr­ingu frá Heim­ild­inni fyrir helgi um að Mið­flokk­ur­inn væri í ein­hverju sam­kurli með ein­hverri MAGA-hreyf­ingu og væri að sækja fundi með þeim í Gauta­borg, er eitt­hvað til í því?“

Talsvert fát kom á Sigmund en hann byrj­aði á að tala um „upp­lýs­inga­óreiðu“ Þor­gerðar Katrínar og að hún hafi einmitt talað um þetta á þing­inu en svo svar­aði hann spurn­ing­unni:

„Þetta er ein­hver tóm steypa. Ég reyndar ekki búinn að lesa þetta en það er búið að fara yfir inni­haldið með mér að ein­hverju leyti. Ég hef ekki tíma til að lesa svona þvætt­ing. En þetta mun vera um það að ein­hverjir amer­ískir Repúblikanar hafi fengið styrki til þess, áhrifa­menn í þeim flokki hafi fengið styrki til að koma að hitta mig. Ég veit ekki hvaða menn þetta eru.“

Þor­gerður Katrín skaut þá inn í: „Þannig að engin tengsl við MAGA?“

Berg­steinn spurði Sigmund: „Þú varst ekki á þessum fundi í Gauta­borg í ágúst í fyrra þar sem þú hittir starfs­menn þing­manna Repúblikana­flokks­ins?“

Sig­mundur svar­aði: „Ég var á fundi í Gauta­borg en veit ekki hvort ein­hverjir sem ég hitti voru starfs­menn Repúblikana­flokks­ins, Demókra­ta­flokks­ins eða ann­arra.“

Berg­steinn spurði: „En ertu í ein­hverju sam­starfi við þessar hreyf­ingar?“

Sig­mundur svar­aði: „Nei, þetta er ein­hver þvætt­ingur! Full­kom­inn þvætt­ingur og ...“

Þor­gerður Katrín skaut þá inn í: „Engin tengsl? Það er gott að heyra það.“

Sig­mundur Davíð hló þá og hélt áfram: „Og eins og svo margt annað hérna. Og eins það að við höfum verið send, Mið­flokks­þing­menn á nám­skeið hjá ein­hverju MAGA-hópi til þess að læra ein­hverja taktík. En þetta sýnir upp­lýs­inga­óreið­una sem er hér ríkj­andi og hversu litlu máli tengsl við raun­veru­leik­ann skipta og hér er stöðugt verið að halda fram ein­hverjum hlutum sem að við þurfum svo að vera upp­tekin við að leið­rétta.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum