Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Blaðamaður braut ekki af sér

Móðir taldi að ekki hafi verið gætt nægi­legrar var­úðar við umfjöllun um ólög­ráða barn

Blaðamaður braut ekki af sér
Höf­uð­stöðvar Morg­un­blaðs­ins Eru stað­settar í Árbænum. Mynd: Víkingur

Erna Ýr Guð­jóns­dóttir, blaða­maður mbl.is, gerð­ist ekki brot­leg við siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands en dómur þess efnis var nýlega birtur á vef félags­ins.

Kærandi í mál­inu var Gréta María Blöndal en hún setti út grein sem Erna skrif­aði sem bar yfir­skrift­ina „Ég er strákamamma út í gegn“.

Gréta taldi að ekki hafi verið gætt nægi­legrar var­úðar við umfjöllun um ólög­ráða barn. Sonur hennar sé auð­þekkj­an­legur á myndum en ekki komi skýrt fram að við­mæl­and­inn í grein­inni sé ekki líf­fræði­leg móðir barns­ins.

Ekki hafi verið gætt nægi­legrar var­færni gagn­vart barn­inu og fram­setn­ing fjöl­skyldu­tengsla hafi ekki verið nægi­lega nákvæm eða sann­gjörn. Að mati Grétu upp­fyllir fram­setn­ingin ekki kröfur um nákvæmni og sann­girni í fjöl­miðlaum­fjöllun og geti haft áhrif á sjálfs­mynd barns­ins og tengsla­myndun þess. Hún telur mik­il­vægt að gæta sér­stakrar var­færni í ljósi þess að mál sem varðar umgengni og tengsl barns­ins við sig og systk­ini þess sé til með­ferðar hjá sýslu­manni. Í slíkum aðstæðum geti opin­ber fram­setn­ing á röngum eða vill­andi fjöl­skyldu­tengslum haft frek­ari áhrif á stöðu barns­ins og tengsla­myndun.

Í andsvörum Ernu er því er hafnað að umfjöll­unin hafi brotið gegn ákvæðum siða­reglna Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Greinin hafi fjallað um fjöl­skyldu­líf með stóran barna­hóp og áskor­anir sem því fylgja. Fimm börn séu á heim­ili við­mæl­anda og eig­in­manns hennar, en þau hafi ekki verið sér­stak­lega rædd eða til­greind að öðru leyti en sem heild. Þá mót­mælir Erna því að fram­setn­ingin á fjöl­skyldu­tengslum í grein­inni sé röng eða vill­andi af því ekki hafi verið til­greint sér­stak­lega að eitt barn­anna á heim­il­inu væri ekki líf­fræði­legur sonur við­mæl­and­ans. Óeðli­legt hefði verið að nafn­greina hann sér­stak­lega og setja í ólíka stöðu en aðra í fjöl­skyld­unni. Við­mæl­and­inn, eig­in­maður hennar og börn þeirra séu „fjöl­skylda í öllum skiln­ingi þess orðs“, hvað sem líði ágrein­ingi milli kær­anda og blóð­föður um umgengni.

Alvana­legt sé að fjallað sé um fjöl­skyldu­líf fólks án þess að greint sé sér­stak­lega á milli barna með þeim hætti sem kær­andi leggi til. Það sé gert meðal ann­ars með hags­muni barns­ins að leið­ar­ljósi.

Siða­nefndin tók undir sjón­ar­mið kærðu um að í sam­hengi umfjöll­un­ar­innar hefði verið óeðli­legt að til­greina eitt barn­anna og taka fram að við­mæl­and­inn væri ekki líf­fræði­leg móðir þess og fellst siða­nefnd ekki á að umfjöll­unin hafi verið ósann­gjörn eða óná­kvæm.

Erna hafi því ekki brotið siða­reglur Blaða­manna­fé­lags Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina