Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna

„En maður getur vita­skuld ekki stutt kollega sína í hvaða vit­leysu sem er.“

Björn gagnrýnir „sundrungu“ meðal blaðamanna
Björn Þor­láks­son Björn kallar eftir sam­stöðu

Björn Þor­láks­son, þátta­stjórn­andi á Sam­stöð­inni, gagn­rýnir harð­lega það sem hann segir vera vax­andi sundr­ungu innan stéttar blaða­manna á Íslandi. Í færslu á Facebook fjallar hann sér­stak­lega um við­brögð við umdeildri umfjöllun Morg­un­blaðs­ins, svo­nefndu „bíla­kjall­ara­máli“ og á þá við for­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins frá í gær­morgun þar sem því var slegið fram sem stað­reynd að þeir sem hand­teknir voru fyrir lík­ams­árás á Höfða­torgi væru Hamas-liðar, eft­ir­lýstir af Interpol. Það reynd­ist hins vegar ekki rétt, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Björn segir að hann hafi orðið fyrir gagn­rýni frá öðrum blaða­mönnum eftir að hann fjall­aði um málið:

„Sumir blaða­menn hafa djöfl­ast í mér með einka­skila­boðum síðan ég skrif­aði um Moggann í gær og fjall­aði um með beittum hætti við Rauða borðið.“

Hann segir jafn­framt að krafa hafi verið gerð um að blaða­menn sýni sam­stöðu, en hafnar því að slíkt eigi við í öllum til­fellum:

„En maður getur vita­skuld ekki stutt kollega sína í hvaða vit­leysu sem er.“

Í færsl­unni leggur Björn áherslu á að kjarni góðrar blaða­mennsku felist í fag­legum vinnu­brögðum og gagn­rýnir það sem hann kallar „antí­blaða­mennsku“:

„Góð blaða­mennska er fyrst og fremst vinnu­brögð. Vinnu­brögð, verk­lag, agi. Nafnlaus skoð­ana­grein, klædd í gervi fréttar, for­síðu­æsi­skoð­ana­grein, með nafn­lausum heim­ildum, grein sem lög­regla ber til baka skömmu síðar [...] er and­stæða góðra vinnu­bragða.“

Hann telur umfjöllun af þessu tagi geta haft alvar­legar afleið­ingar í við­kvæmu sam­fé­lagi:

„Þegar um ræðir við­kvæmt mál á við­kvæmri stundu í við­kvæmum heimi þar sem bil milli manna og hópa eykst með hverju degi [...] geta aðrir blaða­menn vita­skuld ekki staðið með svo lág­kúru­legu höggi fyrir neðan belt­is­stað fólks í við­kvæmri stöðu.“

Þrátt fyrir gagn­rýn­ina segir Björn að margt gott fólk starfi hjá Morg­un­blað­inu, en telur að ákveðin öfl innan mið­ils­ins séu á villi­götum:

„Moggann skipar vænt fólk í stórum stíl [...] En öfl þarna inn­an­borðs eru á villi­götum. Þau nota áróð­urs­brögð undir hatti blaða­mennsku sem þau halda fram að sé gild, en er það ekki.“

Að lokum segir hann að blaða­menn eigi ekki að standa saman um allt, heldur fyrst og fremst um fag­leg vinnu­brögð:

„Við blaða­menn ættum ein­fald­lega að standa saman með góðri blaða­mennsku en standa gegn vit­leysu sem elur á sundr­ungu og for­dómum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina