Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, leiðir framboðslista Flokks fólksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar í maí en þetta kemur fram í tilkynningu flokksins.
Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi skipar annað sætið og Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir grunnskólakennari er í þriðja sæti. Fjórða sætið skipar Sigurveig Jóhannsdóttir ráðgjafi ungmenna með fjölþættan vanda, Rúnar Sigurjónsson vélvirki og varaborgarfulltrúi skipar fimmta sætið og Lilja S. Steingrímsdóttir hjúkrunarfræðingur er í sjötta sæti.
Flokkur fólksins heldur bjartsýnn út í kosningabaráttuna í Reykjavík samkvæmt tilkynningunni. „Áherslur flokksins í núverandi borgarmeirihluta sem stofnað var til fyrir rúmu ári hafa margar skilað sér. Þar ber hæst að nefna aukið framboð á lóðum til íbúðarbygginga þar sem þegar er byrjað að undirbúa skipulag fyrir um 3.700 íbúðir í Úlfarsárdal. Heildaráætlun gerir hins vegar ráð fyrir að þar rísi allt að tíu þúsund íbúðir á næstu árum.“
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir