Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kallar Guðrúnu „raðljúgandi valdafíkil“

„Þess vegna bið ég ykkur, íslenskir stjórn­mála­menn: Haldið kjafti.“

Kallar Guðrúnu „raðljúgandi valdafíkil“
Bragi Páll Bragi Páll skefur ekki af hlut­unum Mynd: Björgvin Gunnarsson

Rit­höf­und­ur­inn Bragi Páll Sig­urðs­son gagn­rýnir íslenska stjórn­mála­menn harð­lega í nýrri Facebook-færslu og sakar þá um að ala á ótta og for­dómum í stað þess að takast á við raun­veru­leg vanda­mál sam­fé­lags­ins.

Færslan hefst á skýrum orðum:

„Hættið að keyra yfir fólk!“

Hann segir stjórn­mála­menn ann­að­hvort ófæra um að takast á við áskor­anir eða ein­fald­lega áhuga­lausa

„Íslenskir stjórn­mála­menn virð­ast ann­að­hvort ófærir um að takast á við raun­veru­legar áskor­anir lands­manna, eða hrein­lega áhuga­lausir. Ég veit ekki hvort er sorg­legra.“

Ver aðgerðir vegna Gaza

Bragi Páll fjallar um aðgerðir Íslend­inga sem fóru til Kaíró til að aðstoða fólk frá Gaza og segir þær hafa verið nauð­syn­legar vegna aðgerða­leysis stjórn­valda:

„Við sem fórum til Kaíró á sínum tíma til að bjarga fólki frá Gaza gerðum það vegna þess að íslensk stjórn­völd voru aug­ljós­lega ekki að fara að gera neitt. Það er þjóð­ar­morð í gangi.“

Hann leggur áherslu á að um hafi verið að ræða við­kvæma hópa:

„Þarna var fyrst og síð­ast verið að bjarga konum, börnum og fár­veiku fólki, ein­stak­lingum sem voru þegar með sam­þykkta fjöl­skyldu­sam­ein­ingu á Íslandi.“

Þá hafnar hann alfarið ásök­unum um mútur eða tengsl við hryðju­verk:

„Sú orð­ræða að greiddar hafi verið mútur til að flytja inn hryðju­verka­menn er ekki bara órök­studd lygi; hún er bók­staf­lega lífs­hættu­leg.“

Sakar stjórnmálamenn um að ala á ótta

Bragi segir að orð­ræða stjórn­mála­manna hafi raun­veru­legar afleið­ingar:

„Þegar fólk í valda­stöðu lýgur upp á almenna borg­ara hefur það afleið­ingar. Þau búa til grýlur úr sak­lausu fólki svo þau geti stillt sjálfum sér upp sem grýlu­bönum.“

Hann bendir einnig á að allir sem hafi komið frá Gaza hafi farið í gegnum strangt ferli:

„Allir sem komust út af Gaza þurftu að sleppa í gegnum nál­ar­auga þriggja stjórn­valda: Ísraels, Egypta­lands og Íslands. Hver ein­asti ein­stak­lingur þurfti að vera með hreinan skjöld.“

Segir stjórnmálin snúast um að dreifa athyglinni

Í færsl­unni segir Bragi að stjórn­mála­menn reyni að beina athygli frá öðrum málum:

„Þeir egna fólki saman til að draga athygl­ina frá raun­veru­legum vanda Íslands: Háum vöxtum, fákeppni, okur­dýru hús­næði og mis­skipt­ingu.“

Hann telur einnig að for­dómar séu að aukast

„Kyn­þátta­for­dómar og ofbeldi gegn inn­flytj­endum fara vax­andi. Ótti og ein­angrun eykst.“

Hvetur til samstöðu

Bragi Páll beinir beinum skila­boðum til stjórn­mála­manna:

„Þess vegna bið ég ykkur, íslenskir stjórn­mála­menn: Haldið kjafti. Ef þið ætlið ekki að leysa vanda­málin sem við stöndum frammi fyrir, þá ættuð þið að minnsta kosti ekki að gera líf fólks enn verra með lygum og ras­isma.“

Hann gagn­rýnir einnig þá sem taki undir slíka orð­ræðu:

„Svo hef ég séð fólk sem ég þekki, gott fólk sem mér þykir vænt um, taka undir orð Guðrúnar og ann­arra rað­ljúg­andi valda­fíkla. Til þín sem kaupir þessa þvælu: Ekki láta óheið­ar­legt fólk hræða þig. Inn­flytj­endur eru ekki vanda­málið í þínu lífi.“

Að lokum hvetur hann til sam­stöðu gegn sundr­ungu:

„Leyfum þeim ekki að sundra okkur. Öryggi okkar, lífs­gæði og friður sam­fé­lags­ins er í húfi.

Snúum bökum saman gegn þeim sem nota lyg­ina sem vopn og sláum þau úr höndum þeirra. Þeim er alveg sama hvern er ekið yfir á meðan þau fá að sitja við stýrið. Hættum að láta keyra yfir okkur!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum