Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ver aðgerðir vegna Gaza og gagnrýnir íslenska umræðu

„Raunar má segja að blaða­menn Morg­un­blaðs­ins (auk full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins) séu þau einu í heim­inum sem halda slíkum ákúrum á lofti“

Ver aðgerðir vegna Gaza og gagnrýnir íslenska umræðu
María Lilja María Lilja gagn­rýnir íslenska umræðu

María Lilja Ing­veldar Þrast­ar­dóttir Kemp, blaða­maður hjá Sam­stöð­inni og stjórn­ar­með­limur í Solaris, segir í pistli á Vísi að aðgerðir Íslend­inga til að aðstoða fólk frá Gaza hafi verið knúnar áfram af sið­ferði­legri skyldu og neyð­ar­á­standi sem hún lýsir sem „hel­víti á jörð“, með vísan í mat Flótta­manna­stofn­unar Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Hún segir að ákvörð­unin um að fara til Kaíró hafi sprottið af því að stjórn­völd hafi ekki brugð­ist við:

„Þegar und­ir­rituð komst að því að það væri smuga að aðstoða fjöl­skyldur vina og kunn­ingja hér á landi út úr aðstæðum á Gaza sem Flótta­manna­stofnun Sam­ein­uðu þjóð­anna lýsti sem „hel­víti á jörð“ rann mér blóðið til skyld­unnar að gera eitt­hvað, því ég gat það.“

„Stórt samvinnuverkefni“

Að hennar sögn þró­að­ist verk­efnið hratt í umfangs­mikið sam­starf:

„Sagan sem hófst með óvissu­ferða­lagi þriggja kvenna til Kaíró varð að stóru sam­vinnu­verk­efni tuga sjálf­boða­liða, hjálp­ar­sam­taka og íslensku þjóð­ar­innar.“

Hún segir að verk­efnið hafi meðal ann­ars falist í því að fjár­magna ferð flótta­fólks yfir landa­mæri og koma því í hendur Alþjóð­legu fólks­flutn­inga­stofn­un­ar­innar (IOM), sem flutti það til Íslands sam­kvæmt samn­ingi við ríkið.

María Lilja leggur áherslu á að um hafi verið að ræða fólk með lög­mæt leyfi:

„Flótta­fólkið sem íslenska ríkið dró of lengi að sækja úr hörm­ung­unum hafði allt sann­ar­lega lög­mæt útgefin dval­ar­leyfi; leyfi rík­is­ins að sam­ein­ast ást­vinum sínum hér á landi.“

Umdeilt kerfi en „eina leiðin út“

Í pistl­inum fjallar hún ítar­lega um egypska fyr­ir­tækið Hala, sem hún segir hafa verið eina raun­hæfa leiðin út úr Gaza án diplómat­ískrar íhlut­unar.

„Án diplómat­ískrar íhlut­unar íslenskra stjórn­valda var eini og besti kost­ur­inn egypska fyr­ir­tækið Hala,“ skrifar hún.

Hún lýsir starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins sem umdeildu kerfi þar sem greiðslu­geta ráði miklu, en bendir á að alþjóð­legir fjöl­miðlar hafi fyrst og fremst gagn­rýnt kerfið sjálft en ekki þá sem nýta það.

Gagnrýnir íslenska umræðu

María Lilja segir að umfjöllun erlendra miðla sé sam­hljóða að þessu leyti og birtir fjöl­marga hlekki á erlendar fréttir, máli sínu til stuðn­ings.

„Það sem allar þessar umfjall­anir eiga sam­merkt er hvernig ábyrgðin er stað­sett þar sem kerfið og valdið liggur en ekki hjá þeim sem reyna að bjarga lífi sínu eða ann­arra.“

Hún segir það hins vegar sér­kenni­legt að hér á landi hafi gagn­rýnin beinst að ein­stak­lingum og sam­tökum:

„Það vekur þó athygli að þrátt fyrir harða og ítar­lega gagn­rýni fjöl­miðla á fyr­ir­tækið sjálft bein­ist sú gagn­rýni aldrei gegn þeim sem nýta þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins né ein­stak­lingum sem aðstoða þá. Þvert á móti er sagan sögð frá sjón­ar­horni fólks sem flýr loft­árásir, hungur og hörm­ungar; fólks sem selur síð­ustu eigur sínar, skuld­setur sig og greiðir þús­undir doll­ara til að reyna að bjarga sér og sínum.“

Hún heldur áfram:

„Engin af þessum umfjöll­unum sakar hjálp­ar­sam­tök eða ein­stak­linga um að hafa greitt mútur. Engin af þessum umfjöll­unum setur fram stað­festar eða rök­studdar ásak­anir um mútu­greiðslur af hálfu þeirra sem kom­ast út.“

Hún bætir við:

„Engin af þessum umfjöll­unum gerir flótta­fólkið eða þau sem reyna að hjálpa því að ger­endum; ábyrgðin er sett þar sem hún á heima, hjá kerf­inu og þeim sem hagn­ast á því.“

María Lilja tekur blaða­menn Morg­un­blaðs­ins út fyrir sviga:

„Raunar má segja að blaða­menn Morg­un­blaðs­ins (auk full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins) séu þau einu í heim­inum sem halda slíkum ákúrum á lofti opin­ber­lega án þess að hafa fært fyrir þeim full­yrð­ingum nokkrar sann­anir.“

Segir ábyrgðina liggja hjá kerfinu

María Lilja segir að í alþjóð­legri umræðu sé ábyrgðin skýr:

„Gagn­rýnin bein­ist, rétti­lega, að kerf­inu sjálfu, ekki fólk­inu sem flýr þjóð­ar­morð eða ein­stak­lingum eða sam­tökum sem hjálpa því.“

Að hennar mati er það und­an­tekn­ing að þeir sem flýja eða aðstoða séu gerðir að söku­dólgum:

„Í sögu­legu sam­hengi er það hrein­lega algjör und­an­tekn­ing að þau sem flýja stríð og ofsóknir eða þau sem rétta þeim hjálp­ar­hönd séu gerðir að söku­dólgum líkt og gert hefur verið hér á landi und­an­farin miss­eri.“

María Lilja er blaða­maður á Sam­stöð­inni og situr í stjórn Solaris, hjálp­ar­sam­taka fyrir flótta­fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina