Halldóra Dagný Sveinbjörnsdóttir, skólastjóri Grunnskóla Bolungavíkur, hefur látið af störfum eftir að hafa gegnt embættinu frá árinu 2019. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs frá síðustu viku. Bæjarins besta sagði frá málinu.
Í bókun bæjarráðs er henni þakkað fyrir samstarfið og óskað velfarnaðar í nýju starfi. Samkvæmt heimildum Bæjarins besta er gert ráð fyrir að hún taki við starfi við Menntaskólann á Ísafirði.
Jafnframt hefur bæjarstjóra verið falið að auglýsa eftir nýjum skólastjóra við grunnskólann.































Athugasemdir