Staða skólastjóra Víðistaðaskóla er nú í ráðningaferli en alls bárust sjö umsóknir um stöðuna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hafnarfjarðarbæ.
Ráðið verður í stöðuna frá 15. júlí næstkomandi eða eftir nánara samkomulagi.
Skólastjóri Víðistaðaskóla lét af störfum í mars og færði sig yfir í annað starf, í kjölfar þess að starfsfólk hafði í nóvember gert alvarlegar athugasemdir við störf hennar.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir