Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni

„Ef sú víg­lína brestur drukknar heims­byggðin í drullu­svaði sem nú þegar nær víða í mitti.“

Segir blaðamenn þurfa að taka stöðu í framlínunni
Kristinn Hrafns­son Kristinn talar um gervi­greind og áróður í nýrri Facebook-færslu Mynd: HENRY NICHOLLS / AFP

Rit­stjóri WikiLeaks, Kristinn Hrafns­son, segir mik­il­vægt að rýna í mynd­mál í fréttum og áróðri á tímum þar sem mörkin milli raun­veru­leika og til­bú­ins efnis séu sífellt að dofna.

Í Facebook-færslu fjallar hann um nýleg dæmi úr alþjóð­legu frétta­streymi og áhrif myndefnis á almenn­ings­á­lit.

„Það er áhuga­vert fyrir blaða­mann­inn að fylgj­ast með mynd­mál­inu í frétta­streym­inu - frétta­ljós­myndum og áróðri. Hér eru fjögur dæmi, tvær frétta­ljós­myndir og tvö til­felli um gervi­greind­ar­til­bún­ing,“ skrifar Kristinn og birtir tvær frétta­ljós­myndir frá grimmd­ar­verkum Ísraela og tvær gervi­greind­ar­myndir sem sýna Donald Trump sem Jesú og Legó-áróð­urs­mynd.

„Ein mynd veldur óheyrilegum ímyndarskaða“

Kristinn nefnir fyrst ljós­mynd sem hafi vakið mikla athygli:

„Ljós­myndin af ísra­elska her­mann­inum sem er að mölva haus­inn á styttu af Jesú á kross­inum, sem fór á flug um liðna helgi er sterk og hefur lík­leg­ast valdið meiri skaða en frétta­myndir af fólki sem hefur verið strá­fellt í her­námi Ísraels í suð­ur­hluta Líbanons eða þeirri gjör­eyði­legg­ingu sem hefur fylgt þessu nýj­ustu land­töku brjál­æð­ing­ana. Ein mynd veldur óheyri­legum ímynd­ar­skaða.“

Mynd sem „segir meira en þúsund orð“

Hann vísar einnig í umdeilda for­síðu­mynd ítalska tíma­rits­ins L’Espresso:

„Mynd tvö sem birt var á for­síðu ítalska blaðs­ins L’Espresso er einnig sterk og segir meira en þús­und orð. Grimmd­ar­svip­ur­inn á ísra­elska „land­nem­anum“ á Vest­ur­bakk­anum, í skjóli ísra­elska hers­ins er tákn­ræn fyrir stöð­una en hann snýr óifrýni­legum svip að palest­ínskri konu.“

Hann bendir á að við­brögð Ísraels við mynd­inni hafi verið hörð:

„Ísrael mót­mælti þess­ari mynd­birt­ingu harð­lega og kall­aði hana ein­hliða brenglun, svið­setn­ingu, hat­urs­glæp og jú jú - gyð­inga­hatur. Það gerði þó ekki annað en að draga fram frekara myndefni frá þessum atburði og upp­tökur sem sýndu að engin svið­setn­ing var á ferð og vakti athygli á því sem var að ger­ast þarna, sum sé ísrelskt her­tökulið að skemma fyrir óífu­upp­skeru Palest­ínu­manna og gera það sem það gerir best - eyða.“

Gervigreind og áróður

Kristinn fjallar einnig um aukna notkun gervi­greindar í áróðri:

„Á áróð­urs­hlið­inni hefur Íran tekið gervi­greind í sína þjón­ustu og LEGO tón­list­ar­mynd­bönd farið um allan heim eins og eldur í sinu. Í propag­anda slagnum hefur Íran for­ystu sem stendur og eru þarna að ná til unga fólks­ins með ein­földum og snjöllum hætti.“

Hann segir mót­leik Banda­ríkj­anna ekki hafa náð sömu áhrifum:

„Á móti þessu hefur banda­ríkja­stjórn birt áróð­urs­mynd­bönd af eigin her sprengja upp inn­viði og hertól en þau ná ekki máli gagn­vart LEGO köll­unum í svölum rapp-lögum.“

Kristinn nefnir einnig dæmi um notkun gervi­greindar af hálfu Donald Trump:

„Loks er Trump ötull við að nýta sér gervi­greind­ina eins og í AI ljós­mynd­inni sem hann birti af sjálfum sér í hlut­verki hins líkn­andi Krists. Þetta kall­aði á svo heift­ar­leg við­brögð að Banda­ríkja­for­seti neydd­ist til að taka mynd­ina af eigin sam­fé­lags­miðli (sem er fáheyrt) og reyndi síðan að útskýra að fyrir honum hefði þetta ekki verið jesú­mynd heldur mynd af for­set­anum sem lækni.“

Hann segir skýr­ing­una ekki hafa sann­fært marga:

„Sú „útskyr­ing“ vakti hæðn­is­leg við­brögð og raunar gerði illt verra því það fóru á flot hund­ruð gerfi­mynda af Dr. Trump í kjöl­farið.“

Varað við óljósum mörkum sannleikans

Í lok færsl­unnar varar Kristinn við þró­un­inni:

„Hér eru skýrar línur á milli hins raun­veru­lega og hins til­búna. Þær marka­línur eru þó að dofna hratt með auk­inni tækni. Slag­ur­inn við að standa vörð um sann­leik­ana og stað­reyndir er stríð þar sem óhlut­drægir blaða­menn verða að taka sér stöðu í fram­línu. Ef sú víg­lína brestur drukknar heims­byggðin í drullu­svaði sem nú þegar nær víða í mitti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina