Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Stundum er betra að skila auðu“

Jódís Skúla varar við Mið­flokknum

„Stundum er betra að skila auðu“
Jódís Skúla­dóttir Jódís spyr hvort sið­ferð­is­gildi eigi að ráða kjör­seðl­inum Mynd: Alþingi

Jódís Skúla­dóttir, fyrr­ver­andi þing­kona Vinstri grænna, varpar fram spurn­ingum um sið­ferði­lega ábyrgð kjós­enda í færslu á Facebook og veltir fyrir sér hvort rétt sé að styðja flokk ef hluti stefnu hans fer gegn grund­vall­ar­sann­fær­ingu.

„Mig langar að spyrja af ein­lægni og af því að mig langar að skilja. Ef þú ert að mestu leyti sam­mála stefnu­málum ein­hvers flokks en eitt­hvað eitt í stefnu­skránni fer alger­lega gegn sann­fær­ingu þinni, kýstu þá flokk­inn?“ skrifar hún.

Jódís rifjar upp eigin reynslu úr stjórn­málum og aðild sinni að VG:

„Ef ég svara fyrir mig þá var ég félagi í VG af því að nán­ast allt í stefnu þeirra var eitt­hvað sem ég trúi á. Það trufl­aði mig alltaf og ég fór aldrei í neinar graf­götur með það hvað VG var og er rosa­lega mik­ill höf­uð­borgar flokkur. Þetta átti fyrst og fremst við um for­yst­una sem barð­ist gegn flug­vell­inum í Vatns­mýr­inni sem að mínu mati fer gegn stefnu um félags­legt rétt­læti. Einnig var dap­ur­legt áhuga­leysið um risa­stórt nátt­úru­vernd­ar­mál eins og fisk­eldi í Seyð­is­firði í hróp­andi and­stöðu við gildi hreyf­ing­ar­innar.

Ég mat stöð­una samt lengst af þannig að ég ætti meira sam­eig­in­legt með VG en ekki og ég yrði bara að hafa hátt um það sem ég gæti ekki sam­þykkt. Atkvæði veitt VG var betra og hættu minna en atkvæði greitt ein­hverjum öðrum.“

Í færsl­unni fjallar hún einnig um aukið fylgi Mið­flokks­ins í skoð­ana­könn­unum og segir skilj­an­legt að ákveðin stefnu­mál flokks­ins höfði til kjós­enda:

„Nokkur dæmi um áherslur eru td lægri skattar og minna reglu­verk, hags­munir lands­byggð­ar­innar, vernd íslensks land­bún­aðar og sjáv­ar­út­vegs og gagn­rýni á hátt vaxta­stig og stöðu skuldugra heim­ila. Þetta talar nú heldur betur til margra!“

Hún setur þó fyr­ir­vara við slíkan stuðn­ing og bendir á að ekki sé hægt að aðskilja ein­stök stefnu­mál:

„En ef atkvæði veitt þessum góðu málum merkir, og er óað­skilj­an­legt við, atkvæði veitt harð­ari stefnu í inn­flytj­enda- og hæl­is­málum (hvar flokk­ur­inn hefur ítrekað skellt fram röngum töl­fræði­legum upp­lýs­ingum)? Eða ef atkvæði veitt þessum góðu málum merkir atkvæði veitt harðri and­stöðu og mark­vissri aðför að hinsegin fólki?“

Jódís gagn­rýnir þjóð­ern­is­stefnu flokks­ins og varar við afleið­ingum hennar:

„Mið­flokk­ur­inn er þjóð­ern­is­sinn­aður íhalds­flokkur. [...] En það er rosa­lega hættu­legt að fylgja bara öld­unni og kjósa eitt­hvað sem fer gegn sið­ferð­is­legum gildum okkar og ýtir undir sundr­ungu og jað­ar­setn­ingu stórs hluta þjóð­ar­innar.“

Að lokum leggur hún áherslu á að kjós­endur beri ábyrgð á vali sínu:

„Atkvæði greitt þjóð­ern­issinn­uðum íhalds­flokki er atkvæði greitt gegn mennsku og kær­leika í garð hluta fólks á Íslandi. Það er ekki hægt að aðskilja það frá öðrum stefnu­málum og þú verður að vera full­kom­lega með­vit­aður/með­vituð/með­vitað um það þegar þú leggur þitt atkvæði undir. Stundum er betra að skila auðu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum