Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar gagnrýnir vöffluboð Sjálfstæðisflokksins

„Finnst fólki þetta við­eig­andi?“

Bæjarstjóri Reykjanesbæjar gagnrýnir vöffluboð Sjálfstæðisflokksins
Kjartan Már Kjart­ans­son Bæj­ar­stjór­inn er ósáttur að vöfflu­kaffi Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé haldið í safn­að­ar­heim­ili Kefla­vík­ur­kirkju. Mynd: Facebook

Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, er síður en svo sáttur við vöfflu­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins í bænum, sem haldið verður fimmtu­dag­inn 14 maí. Ástæðan er sú að við­burð­ur­inn er hald­inn í safn­að­ar­heim­ili Kefla­vík­ur­kirkju.

Kjartan Már, sem er var ópóli­tískt ráð­inn, birti skjá­skot í kvöld á Facebook af við­burð­ar­boði á vöfflu­kaffið en þar var Kefla­vík­ur­kirkja í bak­grunni. Skrifaði bæj­ar­stjór­inn:

„Finnst fólki þetta við­eig­andi?“

Í kjöl­far færsl­unnar sköp­uð­ust líf­legar umræður en fjöl­margir tjá sig í athuga­semda­kerf­inu og má glöggt sjá að nokk­urs kosn­inga­skjálfta gætir í fólki.

Fjöl­margir svara Kjartani bæj­ar­stjóra á þá leið að þeim finn­ist þetta ekki í lagi, þar á meðal Sigrún nokkur sem skrifar: „100% nei!!! Annað hvort er fólk alveg gíf­ur­lega ómeð­vitað og sam­fé­lags­lega ólæst, eða að póli­tíkin í Reykja­nesbæ er með­vitað að taka afskap­lega hættu­legt skref! Og hvar ætti maður að byrja varð­andi afstöðu og hlut­verk kirkj­unnar.“

Margrét nokkur tekur undir og skrifar: „Eru x-D ekki með kosn­inga­skrif­stofu sem þeir geta boðið fólki uppá kaffi og vöfflur?? Eða er búið að færa hana inni safn­að­ar­heim­ilið. Hoppukast­ali í Akur­skóla, party á Hótel Keflavík. Hvert fer kosn­inga­skrif­stofan næst. Já allt fallt fyrir pen­inga. Púff þetta gæti nú komið eins og búmmer­ang í fangið á ykkur hvað varðar atkvæða­veiðar.“

Ekki eru þó allir sam­mála en kosn­inga­stjóri Sjálf­stæðs­flokks­ins í Reykja­nesbæ, Hermann Nökkvi Gunn­ars­son þakkar bæj­ar­stjór­anum fyrir að vekja athygli á við­burð­inum og segir ekk­ert óeðli­legt við að hafa ljós­mynd af vett­vangi við­burð­ar­ins en þó hefur mynd­inni nú verið breytt og má nú aðeins sjá girni­legar vöfflur á við­burð­inum. Hermann skrif­aði:

„Það eru að sjálf­sögðu allir vel­komnir í safn­að­ar­heim­ilið í vöfflu­kaffi. Ekki er óeðli­legt að mynd sé af vett­vangi við­burð­ar­ins og síður en svo skrýtið að merki þeirra sem haldi við­burð­inn komi fram í mynd­inni. Þetta er ekk­ert nýtt af nál­inni. Engu að síður, ef þetta strýkur ein­hverja vit­laust, þá er búið að upp­færa mynd­ina. Hvet alla til að mæta í vöfflu­kaffið á fimmtu­dag­inn þar sem Guðjón Þorgils tekur lagið:) Takk fyrir að vekja athygli á við­burð­inum.“

Kjartan Már svarar Hermanni um hæl: „Bæj­ar­stjór­anum er stór­lega mis­boðið að kirkjan okkar sé “mis­notuð” með þessum hætti.“

Ísak Ernir Krist­jáns­son, tengda­sonur Bjarna Bene­dikts­sonar, tekur einnig upp hansk­ann fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í sinni athuga­semd sem hljóðar eft­ir­far­andi:

„Mjög eðli­legt! Flokk­ur­inn tekur reglu­lega á leigu safn­að­ar­heim­ili víða um land. Kirkjan er og verður stór partur af sam­fé­lag­inu og húsa­kosti hennar á að nota.“

Gísli nokkur bætir síðan um betur og bendir á nokkur dæmi þar sem Sam­fylk­ingin hefur haldið við­burði í Laug­ar­nes­kirkju og Akur­eyr­ar­kirkju.

Gengið verður til sveit­ar­stjórna­kosn­ingar laug­ar­dag­inn 16 maí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum