Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES

Hag­fræði­pró­fess­or­inn Gauti B. Egg­erts­son gagn­rýnir mál­flutn­ing Ólafs Ragnars Gríms­sonar um Evr­ópu­sam­bandið

Rifjar upp andstöðu Ólafs Ragnars við NATO og EES
Gauti B. Egg­erts­son Hag­fræði­pró­fess­or­inn beinir vasa­ljós­inu að Ólafi Ragnari Mynd: econfip.org

Gauti B. Egg­erts­son, pró­fessor í hag­fræði, gagn­rýnir harð­lega mál­flutn­ing Ólafur Ragnar Grímsson um Evr­ópu­sam­bandið í ítar­legri Facebook-færslu þar sem hann rifjar upp and­stöðu fyrr­ver­andi for­set­ans við bæði NATO og EES-samn­ing­inn.

Tilefni færsl­unnar er nýlegt hlað­varps­við­tal við Ólaf Ragnar þar sem hann kall­aði eftir því að Evr­ópu­málin yrðu rædd „í sögu­legu ljósi“. Gauti segir það ágæta hug­mynd, en telur að slíkt sögu­legt sam­hengi varpi einnig ljósi á eigin póli­tíska for­tíð Ólafs.

Í færsl­unni rifjar Gauti upp hvernig Ólafur Ragnar hafi á sínum tíma verið harður and­stæð­ingur aðildar Íslands að NATO og haldið því fram að banda­lagið gerði Ísland að mögu­legu skot­marki í kjarn­orku­stríði. Þá rifjar hann einnig upp afstöðu hans gegn EES-samn­ingnum árið 1994.

„Ég segi nei,“ hafði Ólafur Ragnar meðal ann­ars sagt um EES-samn­ing­inn á Alþingi á sínum tíma, að því er Gauti rifjar upp.

„Ekki skorti dramat­íska lýs­ingu á þeirri martröð sem sam­þykkt EES myndi hafa í för með sér fyrir lands­menn“, skrifar Gauti og vitnar síðan í orð Ólafs Ragnars:

„Stað­reyndin er nefni­lega sú að þessi mikla evr­ópska draum­sýn sem var hið póli­tíska bak­land fyrir þessum samn­ingum hefur breyst í martröð. Jafnvel í slíka martröð að minn­ing­arnar frá tímum nas­ist­anna birt­ast okkur óþyrmi­lega á sjón­varps­skerm­inum kvöld eftir kvöld. Richard von Weizsäcker, sá merki for­seti Þýska­lands, húman­isti, höfð­ingi og sóma­maður, sem heim­sótti okkur Íslend­inga, getur ekki einu sinni haldið ræðu í höf­uð­borg Þýska­lands án þess að æstur múgur nýnas­ista grýti hann svo að örygg­is­verðir verða að bregða skjöldum fyrir for­set­ann til að tryggja líf hans.“

Gauti segir sér­stak­lega athygl­is­vert að skoða spár Ólafs Ragnars um fram­tíð utan­rík­is­við­skipta Íslands. Hann rifjar meðal ann­ars upp ummæli þar sem Ólafur velti því upp hvort íslensk lakk­rís­fram­leiðsla í Kína gæti reynst þjóð­ar­bú­inu arð­bær­ari en EES-samn­ing­ur­inn.

Vitnar Gauti í Ólaf aftur:

„Það getur nefni­lega vel verið að þessi lakk­rís­verk­smiðja í Kína eigi eftir að gefa íslend­ingum miklu meiri hagnað en EES-ævin­týri hæstv. utan­rrh. Og þegar upp verður staðið snemma á 21. öld­inni muni menn frekar hengja upp myndir af hv. þm. Árna Johnsen en hæstv. utan­rrh. Jóni Baldvin Hanni­bals­syni því að hv. þm. Árni Johnsen hafi haft meira nef fyrir því hvar gróða­von­ina var að finna en hæstv. utan­rrh. Það eru um það bil 1.000 millj. íbúar í Kína. Þeir geta borðað mikið af lakk­rís. Íslend­ingar sem fengju sterka stöðu á þeim mark­aði geta skilað tekjum og arði til þjóð­ar­bús­ins í nán­ast him­in­háum stærðum.“

Pró­fess­or­inn bendir á að árið 2025 fari meira en 80 pró­sent af vöru­út­flutn­ingi Íslands til Evrópu en ein­ungis lítið brot til Kína og Indlands.

„Mér þykja litlar líkur á að Ind­verjar og Kín­verjar fari að borða lakk­rís til að vega upp á móti 80 pró­sentum vöru­út­flutn­ings Íslands til Evrópu á næst­unni,“ skrifar hann.

Gauti telur mál­flutn­ing Ólafs Ragnars um Evr­ópu­sam­bandið í dag mjög líkan þeim rökum sem hann not­aði gegn EES fyrir rúmum þremur ára­tugum. Hann segir umræð­una um Evr­ópu­sam­bandið þurfa að fara fram í sögu­legu sam­hengi, en að það eigi einnig við um afstöðu þeirra sem tjá sig um málið.

„En þá skulum við ekki bara nota vasa­ljósið á Brussel. Látum það líka skína á Ólaf Ragnar,“ skrifar Gauti að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum