Jóhannes Einarsson vélaverkfræðingur og fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Loftleiðum, Flugleiðum og flugfraktarfyrirtækinu Cargolux er látinn, 96 ára að aldri.
Vísir greindi frá andláti hans.
Jóhannes var einn af lykilstjórnendum Loftleiða á mestu uppgangsárum félagsins og gegndi mikilvægu hlutverki í þróun íslenskrar flugstarfsemi á alþjóðavísu.
Jóhannes fæddist í Reykjavík 6. júlí 1929. Hann lauk stúdentsprófi frá MR og nam vélaverkfræði í Bandaríkjunum. Árið 1962 hóf hann störf hjá Loftleiðum eftir að hafa starfað um árabil í Bandaríkjunum.
Eftirlifandi eiginkona hans er Ingibjörg Ólafsdóttir. Þau eignuðust fjögur börn.





























Athugasemdir