Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar

Framsókn og óháðir ganga til meiri­hluta­sam­starfs við Viðreisn.

Gylfi Ólafsson nýr bæjarstjóri Ísafjarðar
Kristján Þór Krist­jáns­son og Gylfi Ólafsson Oddvitar flokk­anna stilltu sér upp fyrir mynd í til­efni af sam­komu­lag­inu Mynd: Facebook

Framsókn og óháðir hafa gengið til meiri­hluta­sam­starfs við Viðreisn í bæj­ar­stjórn Ísa­fjarðar eftir sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Þetta kemur fram í frétt Bæjarins Besta. Framsókn og óháðir komu sterk út úr kosn­ing­unum og fengu fjóra bæj­ar­full­trúa kjörna, á meðan Viðreisn fékk einn full­trúa.

Nýr mál­efna­samn­ingur meiri­hlut­ans, sem inni­heldur 34 atriði, var und­ir­rit­aður í stjórn­sýslu­hús­inu á Ísafirði í dag. Þar er meðal ann­ars lögð áhersla á breyt­ingar og upp­bygg­ingu í skóla­málum, áfram­hald­andi nið­ur­greiðslu skulda sveit­ar­fé­lags­ins og fjöl­breyttar aðgerðir sem eiga að bæta lífs­gæði íbúa á öllum aldri með sterk­ari innviðum og bættri þjón­ustu. Þá ætlar meiri­hlut­inn einnig að vinna áfram að fjölgun verð­mætra starfa á svæð­inu.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu verður Gylfi Ólafsson, bæj­ar­full­trúi Við­reisnar, nýr bæj­ar­stjóri. Kristján Þór Krist­jáns­son, odd­viti Fram­sóknar og óháðra, tekur við for­mennsku í bæj­ar­ráði og Elísabet Sam­ú­els­dóttir úr sama flokki verður for­seti bæj­ar­stjórnar.

„Ég er spenntur og auð­mjúkur gagn­vart nýju hlut­verki. Ég bý að því að hafa verið í bæj­ar­stjórn síð­ustu fjögur ár og þekki því ágæt­lega til flestra mála sem við­koma rekstr­inum. Það er traust milli okkar og Fram­sóknar. Við sækjum saman út frá miðj­unni með hags­muni bæj­ar­búa í fyr­ir­rúmi,“ segir Gylfi Ólafsson.

Kristján Þór Krist­jáns­son segir Framsókn og óháða ánægða með sam­starfið.

„Við í Framsókn og óháðum erum mjög ánægð með sam­komu­lagið við Viðreisn. Framsókn var í minni­hluta við upp­haf síð­asta kjör­tíma­bils. Stefnan okkar þá var að vinna vel með meiri­hluta að öllum góðum málum sveit­ar­fé­lag­inu og íbúum til heilla. Við munum ekki breyta út af þeirri stefnu og von­umst til að vinna vel með öllum flokkum í bæj­ar­stjórn,“ segir hann.

Hann bætir við að flokk­ur­inn vilji styðja góð mál óháð því hvaðan þau komi.

„Það skiptir ekki máli hvaðan gott kemur og tökum við vel í öll mál sem við teljum bæta hag eða líðan íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu,“ segir Kristján.

Ný bæj­ar­stjórn tekur form­lega til starfa 4. júní og nýr bæj­ar­stjóri hefst störf degi síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum