Alls hafa átta einstaklingar sótt um embætti forstjóra Hafrannsóknastofnun. Embættið var auglýst 5. maí og rann umsóknarfrestur út 22. maí.
Samkvæmt upplýsingum frá atvinnuvegaráðuneytinu skipar atvinnuvegaráðherra forstjóra stofnunarinnar til fimm ára í senn að undangengnu mati hæfnisnefndar.
Hæfnisnefndin starfar samkvæmt lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og hefur til hliðsjónar reglur um ráðgefandi nefndir sem meta hæfni umsækjenda um embætti hjá Stjórnarráði Íslands.
Eftirtaldir sóttu um embættið:
- Arnljótur Bjarki Bergsson, sjávarútvegsfræðingur
- Eggert Benedikt Guðmundsson, settur forstjóri
- Guðmundur Jóhann Óskarsson, sviðsstjóri
- Guðmundur Þórðarson, samningamaður
- Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri
- Kristín Harðardóttir, fiskifræðingur
- Logi Einarsson, verkfræðingur
- Óliver Snær Stefánsson, nemi
Nú tekur við mat hæfnisnefndar á umsækjendum áður en atvinnuvegaráðherra tekur ákvörðun um hver verður skipaður í embættið til næstu fimm ára.































Athugasemdir