52 ára kona hefur verið ákærð af héraðssaksóknara fyrir brot gegn valdstjórninni vegna atviks sem átti sér stað við Ægisgarð í Reykjavík þann 5. september 2023.
Samkvæmt ákæru er henni gefið að sök að hafa veist með ofbeldi að lögreglumanni sem var við skyldustörf á vettvangi. Þar segir að hún hafi slegið lögreglumann í vinstri vanga með farsíma sem hún hélt á. Afleiðingar árásarinnar hafi verið þær að lögreglumaðurinn hafi fundið fyrir eymslum og verk í kjálka.
Þess er krafist að konan verði dæmd til refsingar og gert að greiða allan sakarkostnað.































Athugasemdir