Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

Neyt­endur geta sparað umtals­verðar fjár­hæðir með því að bera saman verð milli versl­ana

Verðmunur á einstökum matvörum meiri en tvöfaldur

Nýr sam­an­burður Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á mat­vöru­verði sýnir að verð­munur á ein­stökum vörum er víða mik­ill og í mörgum til­vikum fer hann yfir 30 pró­sent. Verð­munur er gjarnan minni í lág­vöru­versl­unum eða oft á bil­inu 5-10% frá lægsta verði. Nið­ur­stöð­urnar und­ir­strika að neyt­endur geta sparað umtals­verðar fjár­hæðir með því að bera saman verð milli versl­ana.  Samkvæmt úttekt­inni er ódýrasta verðið á mat­vöru að finna í Prís en þar á eftir fylgja Bónus og Krónan.

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ kann­aði verð á mat­vöru dag­ana 8-14. júní í níu versl­unum. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hag­kaupum, Kram­búð­inni, Kjör­búð­inni, Fjarð­ar­kaupum, Prís og SPAR.

Prís ódýrust af lágvöruverslunum

Þegar verð eru borin saman á 289 vörum sem feng­ust í lág­vöru­versl­unum, þeim Bónus, Krónunni, Nettó og Prís var lægsta verðið oft­ast að finna í Prís. 

Versl­unin er með lægsta verð á fjöl­mörgum vörum í öllum helstu vöru­flokkum, þar á meðal mjólk­ur­vörum, brauð­vörum, kjöt­vörum, drykkj­ar­vörum og ýmsum þurr­vörum. Að jafn­aði var verð á vörum í Bónus um 5,5% hærra en þar sem varan fékkst á lægsta verði, sem í nær öllum til­fellum var í Prís. Verð í vörum í Krónunni var að jafn­aði 6% hærra og Nettó um 11% hærra. 

Tæplega 8 þúsund króna verðmunur á vörukörfunni í lágvöruverslunum

Sé vöru­karfa með 100 algengum neyslu­vörum fyrir heim­ili skoðuð var lægsta verðið einnig að finna í Prís þar sem hún kost­aði 60.395 krónur sam­an­borið við 68.127 kr. í Nettó þar sem vöru­karfan var dýr­ust. Í Bónus kost­aði sama karfa 64.373 kr. og í Krónunni 64.546 kr. Vöru­list­ann má í heild sinni sjá hér. 

Mikill verðmunur á algengum neysluvörum

Vöru­úr­val getur verið mjög breyti­legt milli þeirra fjölda versl­ana sem verð­lags­eft­ir­litið heim­sótti og einnig getur verið munur á stærð pakkn­inga sömu vara. Af þeim vörum sem fáan­legar voru í öllum níu versl­un­unum var algengt að verð­munur væri bil­inu 25-70%. Mest mun­aði á verði á heim­il­is­brauði frá Myllunni sem var meira en tvö­falt dýr­ara í Kram­búð­inni heldur en í Prís. Mikill verð­munur er ekki aðeins á sér­vörum heldur einnig á algengum neyslu­vörum sem finna má á flestum heim­ilum. Í flestum til­fellum var hæsta verðið að finna í Kram­búð­inni og þar á eftir  í Hag­kaupum. Listann má í heild sinni finna hér.

Á meðal dæma má nefna:

  • MS létt­mjólk, 1 lítri kost­aði frá frá 259 krónum í  Prís upp í 369 krónur í Kram­búð­inni, sem jafn­gildir 42 pró­senta verð­mun.
  • Nýmjólk var á bil­inu 259 í Prís og 369 krónur í Kram­búð­inni , einnig 42 pró­senta munur.
  • KEA smá­skyr var á bil­inu 201 til 289 krónur eftir versl­unum, eða 44 pró­senta munur. Ódýrust var það í Prís en dýr­ast í Kram­búð­inni.
  • Heim­il­is­jó­gúrt með jarð­ar­berja­bragði kost­aði frá 492 krónum í Prís upp í 649 krónur í Kram­búð­inni, sem er 32 pró­senta munur.
  • Góðostur í sneiðum kost­aði á bil­inu 1.105 í Prís og 1.399 krónur í Kram­búð­inni, eða 27 pró­senta munur.

Meiri verðmunur í krónum á kjöt og fisk

Mestur verð­munur í krónum talið mæld­ist á stærri og dýr­ari kjöt­vörum.

Kjarna­fæði Lúxus Lamba­læri kost­aði frá 2.599 kr/kg í Prís upp í 4.779 kr/kg í Nettó, sem jafn­gildir 84 pró­senta verð­mun og rúm­lega 2.100 króna mis­mun á kr/kg.

Ali brak­andi læra­kjöt var á bil­inu 1.659 til 2.239 krónur, eða 35 pró­senta munur. Þá kost­aði kjúklinga­bringur frá 2.110 kr/kg upp í 2.759 kr/kg krónur eftir versl­unum.

Verð á ávöxtum og grænmeti einnig breytilegt

Verð á græn­meti og ferskvöru var sömu­leiðis breyti­legt.

Rauð epli voru ódýr­ust í Prís á 399 kr/kg en þar eftir fylgdi krónan á 413 kr/kg og Bónus á 459 kr/kg. 

Spergilkál kost­aði frá 479 krónum upp í 749 krónur, sem er 56 pró­senta munur. Lamb­haga­salat var á bil­inu 459 til 799 krónur, eða 74 pró­senta munur.

Verð­munur á sveppum og tómötum var minni, eða 13 og 12 pró­sent.

Þúsundir króna geta skilið á milli

Þótt mun­ur­inn á ein­stökum vörum virð­ist oft ekki mik­ill getur hann safn­ast hratt upp þegar keyptar eru margar vörur í einni inn­kaupa­ferð.

Könnunin sýnir að verð­munur á algengum dag­vörum er enn mik­ill og að sér­stak­lega getur borgað sig að fylgj­ast með verði á kjöti, mjólk­ur­vörum og brauð­vörum þar sem mun­ur­inn er gjarnan mik­ill..

Um könnunina

Í könn­un­inni var verð á mat­vöru kannað í níu versl­unum dag­ana 8-14. júní. Verð voru könnuð í Bónus, Krónunni, Nettó, Hag­kaupum, Kram­búð­inni, Kjör­búð­inni, Fjarð­ar­kaupum, Prís og SPAR.

Í verð­sam­an­burði er miðað við hillu­verð sem neyt­andi hefur upp­lýs­ingar um í versl­un­inni. Þegar skýrt er gefið til kynna að veittur sé afsláttur/til­boðs­verð af merktu verði við kassa var skráð afslátt­ar­verð.

Öll verð ásamt nýj­ustu verðum geta neyt­endur nálg­ast í Nappinu eða á ver­dlags­eft­ir­lit.is

Hér er aðeins um beinan verð­sam­an­burð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjón­ustu sölu­að­ila. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina