Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond

„Það sem hann var að segja var galið, í alvöru talað, algjör­lega galið“

YouTube-stjarnan tjáir sig meira um meint kynþáttaníð Sigga Bond
Sigurður Bond Snorra­son Með honum er Kristján Óli Sig­urðs­son Mynd: Skjáskot/Jakey Davies

Enska YouTube-stjarnan Morgan Lee Burtwistle, betur þekktur sem AngryG­inge, lenti í orða­skaki við Sigurð Gísla Bond Snorra­son, fót­bolta­sér­fræð­ing Dr. Football og fyrrum knatt­spyrnu­mann, á leik Englands og Gana í L-riðli heims­meist­ara­móts karla í knatt­spyrnu sem fram fór í Foxborough á þriðju­dag.

Burtwistle sak­aði Sigurð Gísla um kyn­þátt­a­níð í garð leik­manna Gana og til­kynnti atvikið til örygg­is­gæslu á leik­vang­inum. Hann krafð­ist þess að Íslend­ingnum yrði vísað af svæð­inu en sam­kvæmt honum fékk Sigurður aðeins aðvörun og var heim­ilt að vera áfram á leiknum en þó virð­ist hann ekki hafa fengið að snúa aftur í sama sæti ef marka má Burtwistle.

Í mynd­skeiði sem Burtwistle birti á TikTok sést Sigurður biðj­ast afsök­unar á ummælum sínum.

„Ég biðst afsök­unar á ummælum mínum um leik­menn Gana. Þetta kemur ekki fyrir aftur, getum við ekki gleymt þessu?“ sagði hann.

Burtwistle sagði ummælin óásætt­an­leg og lagði áherslu á að for­dómar ættu ekki heima í knatt­spyrnu. Sigurður er staddur í Banda­ríkj­unum í boði veð­mála­fyr­ir­tæk­is­ins Coolbet ásamt hópi Íslend­inga að sögn Morg­un­blaðs­ins.

Burtwistle ákvað að tjá sig meira um málið í nýju mynd­bandi. Endurtók hann að ýmsu leyti sem hann sagði í fyrra mynd­bandi sínu en tók fram að hann hefði fengið fjölda skila­boða þar sem honum hafi verið sagt að um íslenskan mann væri að ræða og sá væri fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­maður. Í mynd­band­inu segir Burtwistle að hann og fjórir vinir hans hafi allir heyrt í Sigurði svo það fari ekk­ert á milli mála að það hafi verið hann.

„Það sem hann var að segja var galið, í alvöru talað, algjör­lega galið,“ segir Burtwistle meðal ann­ars í nýja mynd­band­inu.

Mannlíf sendi Sigurði fyr­ir­spurn um málið í morgun en hann hefur ekki svarað henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Málið kemur upp eftir stjórnarskipti í Serbíu, þar sem barátta gegn spillingu var í forgrunni
Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Sport

Sport

Lakers-goð­sögn mætir á OnlyFans

Lék lengst af með Los Angeles Lakers og varð NBA meistari með liðinu tvö ár í röð
Sport

Neville vill losna undan City þar til örlög félags­ins ráð­ast

Myndband
Sport

Lög­reglan kölluð til vegna þriggja ára fót­bolta­snill­ings

Sport

Ætlar að birta eina brjósta­mynd á dag þar til þjálf­ari Man Utd verður rek­inn

Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harka­lega