Karlmaður með óþekkt lögheimili í Frakklandi hefur verið ákærður fyrir brot gegn lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi auk umferðarlaga eftir ætlaðan ólöglegan atvinnuakstur á Selfossi.
Samkvæmt ákæru Lögreglustjórans á Suðurlandi er maðurinn sakaður um að hafa mánudaginn 7. apríl 2025 ekið bifreið um Austurveg við Eyraveg á Selfossi við farþegaflutninga í atvinnuskyni í ferðaþjónustu.
Í ákærunni kemur fram að hann hafi hvorki haft tilskilin ökuréttindi fyrir slíkan akstur né gilt rekstrar- og ferðaþjónustuleyfi. Lögregla stöðvaði aksturinn á vettvangi.
Málið er talið varða brot gegn lögum um farþegaflutninga og farmflutninga á landi sem og umferðarlögum.
Þess er krafist að ákærði verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar.
Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands þann 10. september.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















Athugasemdir