Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stafrænum kynferðisbrotum fjölgar verulega á Íslandi

Til­kynn­ingar um vændi auk­ist mikið

Stafrænum kynferðisbrotum fjölgar verulega á Íslandi
Kyn­ferð­is­brot gegn börnum voru 29 tals­ins eða 16% fleiri en á sama tíma­bili árið 2025. Mynd: Víkingur

Til­kynntum kyn­ferð­is­brotum fjölg­aði um 9% fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2026 miðað við sama tíma­bil í fyrra. Mest áber­andi er veru­leg fjölgun til­kynn­inga um kyn­ferð­is­lega áreitni og staf­ræn kyn­ferð­is­brot sem juk­ust um 64% milli ára og mikil aukn­ing til­kynn­inga um vændi sem nær þre­föld­uð­ust. Á sama tíma­bili fækk­aði til­kynntum nauðg­unum lít­il­lega milli ára.

Rík­is­lög­reglu­stjóri hefur birt nýja skýrslu um til­kynnt kyn­ferð­is­brot til lög­reglu fyrstu 3 mán­uði árs­ins 2026. Á tíma­bil­inu var til­kynnt um 153 kyn­ferð­is­brot til lög­reglu, sam­an­borið við 140 á sama tíma­bili árið 2025 sem er 9% aukn­ing milli ára. Ef litið er til lengra tíma­bils má sjá að brotin voru flest fyrstu þrjá mán­uði árs­ins árin 2019, 2021 og 2022. Kyn­ferð­is­brot­unum fækk­aði eftir það en fjölg­aði í ár miðað við síð­ast­liðin 3 ár.

Lög­reglan skráir bæði hvenær kyn­ferð­is­brotið átti sér stað og hvenær það var til­kynnt til lög­reglu, þar sem í hluta mála líður langur tími þar á milli. Tölur fyrir nýleg tíma­bil geta því enn breyst eftir því sem eldri brot eru til­kynnt. Til­kynntar nauðg­anir á tíma­bil­inu voru 47, fjórum færri en á sama tíma­bili í fyrra. Sé hins vegar horft til brota sem áttu sér stað þessa fyrstu þrjá mán­uði fjölg­aði þeim milli ára, úr 34 í 40.

Tilkynningum um stafræn kynferðisbrot fjölgar verulega

Til­kynn­ingar um kyn­ferð­is­lega áreitni og staf­ræn kyn­ferð­is­brot voru 46 á tíma­bil­inu sam­an­borið við 28 árið áður sem er 64% aukn­ing. Sam­an­borið við með­al­tal sama tíma­bils síð­ustu þriggja ára nemur aukn­ingin um 45%. Kyn­ferð­is­brot gegn börnum voru 29 tals­ins eða 16% fleiri en á sama tíma­bili árið 2025.

Tilkynningar um vændi aukist mikið

Til­kynn­ingar um vændi juk­ust milli ára, úr 11 málum fyrstu þrjá mán­uði árs­ins 2025 í 19 mál á sama tíma­bili 2026, sem er 73% aukn­ing. Sam­an­borið við með­al­tal sama tíma­bils síð­ustu þriggja ára þar á undan er um þre­földun að ræða eða 200% aukn­ingu. Sveiflur í þessum flokki geta tengst frum­kvæð­is­vinnu lög­reglu og auk­inni áherslu stjórn­valda á skipu­lagða brota­starf­semi fremur en raun­breyt­ingu á tíðni brota.

Konur í miklum meirihluta brotaþola

Konur voru 83% brota­þola í öllum til­kynntum kyn­ferð­is­brotum og hlut­fallið var enn hærra í nauðg­un­ar­málum eða 95%. Hlut­föllin snú­ast við þegar litið er til grun­aðra en karlar voru 90% þeirra sem grun­aðir voru um kyn­ferð­is­brot á tíma­bil­inu og 98% grun­aðra í nauðg­un­ar­málum. Tölu­verður ald­urs­munur var milli brota­þola og grun­aðra. Með­al­aldur brota­þola var 24 ár en með­al­aldur grun­aðra 34 ára. Tæpur helm­ingur brota­þola eða 48% var undir 18 ára aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina