Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ísland meðal 66 ríkja á ráðstefnu um „öfgaöfl á vinstri vængnum“

„Við eigum engan annan kost en að takast á við þessa ógn saman.“

Ísland meðal 66 ríkja á ráðstefnu um „öfgaöfl á vinstri vængnum“
Marco Rubio Rubio fór fyrir ráð­stefn­unni Mynd: FINN GOMEZ / GETTY IMAGES VIA AFP

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, stóð í gær fyrir alþjóð­legri ráð­stefnu um það sem banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neytið kallar „öfga­hryðju­verk á vinstri vængnum“. Full­trúar frá 66 ríkjum, þar á meðal Íslandi, sátu fund­inn, að því er fram kemur í frétt Time.

Markmið ráð­stefn­unnar var að afla alþjóð­legs stuðn­ings við að bregð­ast við því sem ráðu­neytið lýsir sem end­ur­vak­inni ógn af slíkum öfgum.

Í setn­ing­ar­ræðu sinni sagði Rubio að um væri að ræða eitt­hvað sem væri „sér­stak­lega og ein­stak­lega illt“ sem byggð­ist fyrst og fremst á hatri á sjálfri sið­menn­ing­unni.

„Þetta er alþjóð­leg ráð­stefna vegna þess að við stöndum frammi fyrir alþjóð­legri ógn sem nær yfir landa­mæri. Við eigum engan annan kost en að takast á við þessa ógn saman. Ann­að­hvort vinnum við saman yfir landa­mæri eða hryðju­verka­menn munu halda áfram að nýta sér gluf­urnar á milli þeirra,“ sagði Rubio.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu sendu alls 66 ríki full­trúa á ráð­stefn­una. Þar á meðal voru Ísland, Danmörk, Noregur, Finnland, Bretland, Frakk­land, Þýska­land, Kanada, Ástralía, Ísrael, Japan, Suður-Kórea og fjöldi ann­arra ríkja.

Ekki hefur verið upp­lýst hver sat fund­inn fyrir hönd Íslands.

Breytt áhersla Trump-stjórnarinnar

Ráð­stefnan kemur á sama tíma og Donald Trump for­seti og rík­is­stjórn hans hafa ítrekað kennt hópum á vinstri væng stjórn­mál­anna um aukið póli­tískt ofbeldi í Banda­ríkj­unum og gert þá að meg­in­við­fangs­efni í bar­átt­unni gegn hryðju­verkum. Með því hefur verið horfið frá áherslum Joe Biden, for­vera Trumps.

Rubio hélt því fram að öfgar á vinstri vængnum hefðu lengi verið „blindi blett­ur­inn“ í umræðu um póli­tískt ofbeldi og sak­aði banda­rísk stjórn­völd um að hafa afsakað ofbeldi sem tengd­ist vinstrisinn­uðum mál­stað.

Hann nefndi sér­stak­lega mót­mæli Black Lives Matter-hreyf­ing­ar­innar árið 2020 í kjöl­far dauða George Floyd.

Stephen Miller, stað­geng­ill starfs­manna­stjóra Hvíta húss­ins, tók í svip­aðan streng og sagði öfga­öfl á vinstri vængnum stefna að því að grafa undan banda­rísku stjórn­kerfi.

Scott Bessent fjár­mála­ráð­herra sagði jafn­framt að vinstrisinnuð öfga­hreyf­ing beitti ekki aðeins ofbeldi heldur einnig „hljóð­lát­ari“ aðferðum, svo sem til­raunum til að þagga niður í and­stæð­ingum og veikja opin­berar stofn­anir.

Í yfir­lýs­ingu Hvíta húss­ins sagði að ráð­stefnan mark­aði upp­haf að „for­dæma­lausri alþjóð­legri sókn gegn alþjóð­legri ógn rót­tækra vinstri öfga­manna“ og að Trump-stjórnin myndi fram­vegis taka á slíkum öfgum af sömu festu og áður hefði verið gert gagn­vart hryðju­verkum jihadista.

Gögn sýna fleiri banvæn árásir frá hægri öfgamönnum

Þrátt fyrir mál­flutn­ing Trump-stjórn­ar­innar bendir Time á að rann­sókn­ar­gögn sýni að hægri öfga­menn hafi valdið fleiri ban­vænum árásum í Banda­ríkj­unum en öfga­menn á vinstri vængnum, þótt árásum vinstri­s­inn­aðra hópa hafi fjölgað á und­an­förnum árum.

Samkvæmt rann­sókn Cato-stofn­un­ar­innar frá sept­em­ber 2025 voru 81 drepnir í póli­tísku ofbeldi í Banda­ríkj­unum á síð­ustu fimm árum. Þar af voru 54 pró­sent dauðs­falla rakin til hægri öfga­manna, 22 pró­sent til vinstri öfga­manna og 21 pró­sent til ísla­mista.

Önnur rann­sókn, sem birt var árið 2024 á vegum National Institute of Justice, komst að þeirri nið­ur­stöðu að hægri öfga­menn hefðu frá árinu 1990 framið mun fleiri hug­mynda­fræði­lega drifin mann­dráp en bæði vinstri öfga­menn og íslamskir öfga­menn.

Jafn­framt bendir nýleg rann­sókn Center for Strategic and International Studies (CSIS) til þess að frá 2016 til 2025 hafi hægri öfga­menn valdið 82 dauðs­föllum, en vinstri öfga­menn 13. Sú rann­sókn sýnir þó einnig að atvik tengd vinstri öfgum hafi farið fjölg­andi og að árið 2025 hafi þau í fyrsta sinn verið fleiri en atvik tengd hægri öfgum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum