Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Íslendingur knésetti easyJet

Svika­mylla afhjúpuð á Gatwick

Íslendingur knésetti easyJet

Flug­fé­lagið easyJet hefur við­ur­kennt mis­tök, end­ur­greitt auka­gjald og fjar­lægt stál­p­lötur úr far­ang­urs­grindum á Gatwick-flug­velli í Lundúnum. Þetta er nið­ur­staðan eftir margra mán­aða bar­áttu Aðal­steins Svan Hjelm sem neit­aði að sætta sig við ósann­gjarna inn­heimtu.

Málið hófst í maí síð­ast­liðnum þegar Aðal­steinn var á leið í frí til Grikk­lands gegnum Gatwick-flug­völl. Við hliðið var hann stöðv­aður af starfs­fólki easyJet og beðin um að setja hand­far­ang­urstöskur sínar í málm­grind sem notuð er til að stað­festa lög­mæt mál far­ang­urs.

Aðal­steinn var með Sam­son­ite-tösku sem er sér­stak­lega merkt sem „easyJet Verified“ og hefur nýst í fjölda ferða um allan heim án athuga­semda. Í þetta skiptið pass­aði taskan hins vegar ekki í grind­ina. Þrátt fyrir mót­mæli far­þega var svarið ein­falt: „Ef hún passar ekki, þá borg­arðu.“ Lyktaði mál­inu svo að parið þurfti að greiða um 16.000 íslenskar krónur (tæp­lega 100 bresk pund) í auka­gjald fyrir tvær töskur.

Kerfið brást neytendum

Aðal­steinn tók myndir af atvik­inu og hóf þegar dag­inn eftir form­legt kæru­ferli. Eftir að easyJet og Gatwick-flug­völlur höfn­uðu kröfum hans, var mál­inu skotið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurð­ar­að­ili í flug­málum í Bret­landi.

Á öllum stigum máls­ins var kröfu Aðal­steins hafnað og á engum tíma­punkti var gripið til þess úrræðis að mæla umrædda málm­grind með óháðum hætti. Aviation ADR kvað upp loka­úr­skurð þar sem tekið var undir orð easyJet og mál­inu lokað.

Augljós fjárhagslegur hvati

Aðal­steinn hóf þá eigin rann­sókn á mál­inu og komst að því að fjöl­margir far­þegar höfðu lýst nákvæm­lega sömu reynslu á vett­vangi bresku neyt­enda­sam­tak­anna Which?.

Í ljós kom að easyJet hefur útvi­stað þess­ari hlið­ar­þjón­ustu til verk­taka. Samkvæmt breskum miðlum fær verk­tak­inn hlut­deild í hverri inn­heimtu, sem nemur um 2,50 pundum af hverjum 48 pundum sem inn­heimt eru. Slíkt fyr­ir­komu­lag skapar aug­ljósan fjár­hags­legan hvata fyrir starfs­fólk til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Auka­gjöld vegna hand­far­ang­urs og ann­arrar hlið­ar­þjón­ustu eru gríð­ar­lega mik­il­væg tekju­lind fyrir flug­fé­lagið, en á síð­asta fjár­hags­ári námu þessar tekjur um 2,46 millj­örðum breskra punda, sem nemur um 30% af heild­ar­tekjum easyJet.

Fullnaðarsigur og viðurkenning á mistökum

Í stað þess að gef­ast upp eftir nei­kvæðan úrskurð Aviation ADR, ákvað Aðal­steinn að senda loka­er­indi beint á per­sónu­leg net­föng æðstu stjórn­enda easyJet þar sem hann reif­aði málið og sönn­un­ar­gögnin.

Aðeins nokkrum klukku­stundum síðar barst svar frá flug­fé­lag­inu þar sem lið­sinni hans var þakkað. Í ljós kom að easyJet hafði hrundið af stað inn­an­hús­rann­sókn sem leiddi til þess að ákveðið var að fjar­lægja allar stál­p­lötur úr far­ang­urs­grind­unum á Gatwick-flug­velli. Flug­fé­lagið baðst afsök­unar og lof­aði fullri end­ur­greiðslu.

Málinu er þó ekki alveg lokið þar sem Aðal­steinn hefur þegar sent fyr­ir­spurn til baka um hvað standi til að gera varð­andi þá þús­undir ann­arra far­þega sem kunna að hafa greitt ólög­mæt gjöld á meðan stál­p­löt­urnar voru í notkun. Þá verða gögn máls­ins send áfram til breskra neyt­enda­sam­taka og stærri fjöl­miðla ytra til að tryggja að málið fái verð­skuld­aða athygli.

Aðal­steinn lýsir raunum sínum í opin­berri færslu sem lesa má í heild sinni hér:

„Smá FYI næst þegar þið fljúgið með easyJet eða öðru flug­fé­lagi og svika­myllu sem virð­ist fá þar að dafna og gott er fyrir ykkur að hafa í huga.

Við Inga fórum í dásam­lega ferð til fjöl­skyld­unnar okkar í Grikk­landi í maí síð­ast­liðnum. Alltaf jafn ynd­is­legt að koma þangað. Við easyJet hliðið í Gatwick lentum við hins vegar í heldur leið­in­legri reynslu þegar við vorum stöðvuð og beðin um að setja hand­far­ang­urstösk­urnar okkar í málm­grind sem á að stað­festa hvort þær upp­fylli 45 cm regl­una hjá easyJet. Ekkert óeðli­legt við það í sjálfu sér.

Ég var með Sam­son­ite hand­far­ang­urstösku sem er merkt „easyJet Verified“ og hef ferð­ast með hana vítt og breitt um heim­inn án vand­ræða. Ein­hverra hluta vegna pass­aði taskan allt í einu ekki í grind­ina. Ég benti starfs­fólk­inu kurt­eis­lega á að eitt­hvað hlyti að vera athuga­vert þar sem ég hefði aldrei áður lent í þessu með sömu tösku. Svarið var frekar ein­falt:

„If it does not fit, you pay!“

Þrátt fyrir mót­mæli og tuð af minni hálfu og fleiri far­þega sem urðu vitni að þessu, end­aði málið með því að við þurftum að greiða um 16.000 krónur í auka­gjald fyrir tvær hand­far­ang­urstöskur.

Mér fannst eitt­hvað ekki stemma þarna. Ég hef ferð­ast með þessa tösku í fjölda ferða án athuga­semda og fannst fram­koma starfs­fólks­ins óvenju ákveðin. Ég tók því myndir af öllu og hóf dag­inn eftir form­legt kæru­ferli hjá easyJet.

Þegar það skil­aði engu sneri ég mér að Gatwick-flug­velli sem gat eða vildi ekk­ert aðhaf­ast. Að lokum fór málið til Aviation ADR, sem á að heita óháður úrskurð­ar­að­ili í svona málum. Á öllum stigum var kröf­unni minni hafnað um sann­gjarna með­ferð og á engum tíma­punkti var gripið til þess ein­falda úrræðis að mæla málm­grind­ina með óháðum hætti. Mér fannst það væg­ast sagt und­ar­legt og var ekki til­bú­inn að kyngja þessu og fór því að skoða málið betur. Þar kemur í ljós að fjöl­margir hafa lýst nákvæm­lega sömu reynslu. Hér eru nokkrar greinar um málið:

https://www.which.co.uk/.../what-to-do-if-an-airline...

https://www.which.co.uk/.../why-easyjet-passengers-should...

Samkvæmt þessum heim­ildum hefur easyJet útvi­stað þess­ari þjón­ustu til verk­taka. Þar kemur jafn­framt fram að far­þegar greiði 48 GBP (um 8.100 kr.) fyrir hverja tösku sem er talin of stór. Af þeirri upp­hæð fær verk­tak­inn sam­kvæmt sömu heim­ildum 2,50 GBP (um 420 kr.) fyrir hverja inn­heimtu. Ef þessar upp­lýs­ingar eru réttar skap­ast aug­ljós fjár­hags­legur hvati til að finna sem flestar töskur sem „passa ekki“.

Til að setja þetta í sam­hengi skulum við taka ein­falt dæmi. EasyJet flýgur fjórum sinnum á dag frá Gatwick til Aþenu. Ef við gefum okkur að að með­al­tali 30 far­þegar í hverju flugi greiði 8.100 kr. í auka­gjald vegna hand­far­ang­urs, gætu tekj­urnar numið um 972.000 krónum á dag, eða rúm­lega 355 millj­ónum króna á ári – frá þess­ari einu flug­leið. Af þeirri upp­hæð myndu um 18,4 millj­ónir króna renna til verk­tak­ans sam­kvæmt fram­an­greindum upp­lýs­ingum.

Til sam­an­burðar rekur easyJet um 1.600 flug á dag um Evrópu. Ef sam­bæri­leg fram­kvæmd á sér stað á fleiri flug­völlum og hliðum er ljóst að um mjög háar fjár­hæðir gæti verið að ræða. Þessir útreikn­ingar eru að sjálf­sögðu aðeins dæmi sem sýna hversu miklar tekjur geta orðið til ef slíkar inn­heimtur eru algengar.

Það sem gerir þetta enn athygl­is­verð­ara er að sam­kvæmt árs­reikn­ingi easyJet námu tekjur félags­ins af auka­gjöldum – svo sem hand­far­angri, sæta­vali, for­gangs­þjón­ustu og annarri við­bót­ar­þjón­ustu – um 2,46 millj­örðum breskra punda á síð­asta fjár­hags­ári, eða um 413 millj­örðum íslenskra króna. Það jafn­gildir um 30% af tekjum flug­rekstrar félags­ins. Það er því ljóst að auka­gjöld eru ekki smá­vægi­legur hluti af rekstr­inum heldur afar mik­il­væg tekju­lind sem kemur meðal ann­ars til vegna svona vinnu­bragða.

Í morgun fékk ég sem­sagt loka­úr­skurð frá Aviation ADR. Þau sjá enga ástæðu til að taka málið til frek­ari skoð­unar og treysta ein­fald­lega á orð easyJet um að allt sé í þarna í himna­lagi.

Næsta skref væri því að fara með málið fyrir dóm­stóla og jafn­vel í fjöl­miðla. Ég nenni hrein­lega ekki að eyða meiri tíma í þetta en lang­aði að deila þess­ari reynslu okkur öllum víti til varn­aðar.

Þannig að, kæru vinir, næst þegar þið ferð­ist með hand­far­angur, takið með ykkur mál­band. Eftir þessa reynslu get maður því miður ekki lengur treyst easyJet aftur né jafn­vel öðrum flug­fé­lögum - að tekið sé á svona málum af sann­girni og heið­ar­leika. Kannski er það bara svona sem þessi lággjalda­flug­fé­lög ná að halda verð­inu á flug­mið­anum niðri og ná svo inn aur­unum með klækja­brögðum líkt og við Inga okkar lentum hér því miður í.

Rétt til að bæta því við þá þurfa sem dæmi öll tæki sem við fram­leiðum og seljum hjá Marel og notuð eru til við­skipta eftir vigt, að vera lög­gilt og reglu­lega vottuð af hinu opin­bera til að tryggja sann­gjarna verð­lagn­ingu. Sam­bæri­legar kröfur virð­ast hins vegar ekki gilda um mæli­búnað flug­fé­laga sem þýðir í raun að flug­fé­lög geta hagað sér þarna sem þeim sýn­ist og halað inn millj­ón­unum á dag án nokk­urra afskipta frá eft­ir­lits­stofn­unum. Það finnst mér, að minnsta kosti, umhugs­un­ar­efni.

Ást og friður!

UPPFÆRT: Fulln­að­ar­sigur!! Sjáið í komment­inu mínu hér fyrir neðan

UPPFÆRT: Fulln­að­ar­sigur!!

Vill svo ótrú­lega til að eftir að dóm­ur­inn hjá Aviation ADR var kveð­inn upp í morgun og ég gerði í kjöl­farið eina loka­til­raun með því að senda tölvu­póst á nokkra af helstu stjórn­endum easyJet, með net­föng sem ég hafði kom­ist yfir, var haft sam­band við mig núna seinni­part­inn.

Þar við­ur­kennir easyJet að eftir rann­sókn sem flug­fé­lagið seg­ist hafa hrint af stað – vænt­an­lega í kjöl­far kærunnar frá mér – hafi verið ákveðið að fjar­lægja allar stál­p­lötur úr umræddum far­ang­urs­grindum á Gatwick. Ég mun fá gjaldið að fullu end­ur­greitt og beðist hefur verið afsök­unar á því sem gerð­ist.

Núna í kjöl­farið sendi ég svo easyJet þakk­ar­póst fyrir að hafa loks­ins brugð­ist við og leið­rétt það sem ég tel aug­ljós mis­tök, eftir marga mán­uði af sam­skiptum og kæru­ferlum af ýmsum toga. Ég sendi jafn­framt allar nauð­syn­legar ban­ka­upp­lýs­ingar vegna end­ur­greiðsl­unnar.

Um leið lét ég þá spurn­ingu fylgja með hvað stæði til að gera varð­andi alla hina far­þeg­ana sem kunna að hafa greitt sam­bæri­leg gjöld á meðan þessar stál­p­lötur voru enn í notkun und­an­farna mán­uði. Það verður mjög áhuga­vert að sjá hvernig easyJet bregst við þeirri spurn­ingu, nú þegar flug­fé­lagið hefur við­ur­kennt mis­tök og gripið til úrbóta.

Þetta er því klár sigur fyrir mig. Málinu er þó ekki lokið að mínu mati. Ég mun senda öll gögn áfram til neyt­enda­sam­taka í Bret­landi og nokk­urra vel val­inna fjöl­miðla þar í landi, enda tel ég mik­il­vægt að upp­lýsa hvort fleiri far­þegar hafi orðið fyrir sam­bæri­legri með­ferð. Þar verður eitt­hvað fjaðrafokið skal ég segja ykkur ef ég þekki Eng­lend­ing­ana rétt!

Rétt­lætið sigrar sem­sagt alltaf að lokum, kæru vinir!!

Hér er umrætt svar frá easyJet, sem er í raun kostu­legt í ljósi alls þess sem á undan er gengið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara