Þrettán umsækjendur eru um embætti forstjóra Stofnunar atvinnuveganna en greint er frá þessu í tilkynningu frá stjórnvöldum. Embættið var auglýst laust til umsóknar 7. júlí sl. og rann umsóknarfrestur út 4. ágúst.
Atvinnuvegaráðuneytið felur nefnd að fara yfir þær umsóknir sem bárust. Nefndin skilar atvinnuvegaráðherra rökstuddu áliti á hæfni umsækjenda sem skipar að því loknu í embættið.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Athugasemdir