Óttar Örn Sigurbergsson reis upp frá því að vera starfsmaður á gólfi í verslun Elko í að leiða fyrirtækið. Í stjórnendaviðtali við Mannlíf segir hann frá því hvaðan hann kemur og hvernig hann komst þangað sem hann rataði.
Óttar segir að uppvaxtarárin hafi án efa mótað þann mann sem hann er í dag. Hann ólst upp í Grafarvogi á þeim tíma þegar hverfið var að byggjast upp og rifjar upp að nánast alls staðar hafi verið framkvæmdir og fólk að byggja sér hús. Aðeins sex ára gamall var hann farinn að aðstoða foreldra sína eftir bestu getu við húsbyggingu fjölskyldunnar í Foldahverfi. „Maður lærði snemma að vinna alvöruvinnu,“ segir hann.
Óttar hóf skólagöngu í Foldaskóla þegar skólinn opnaði og gekk þar í gegnum öll grunnskólaárin.
„Þetta var ótrúlega skemmtilegur tími og eru allir mínir æskuvinir úr hverfinu vinir mínir í dag og það er mikill styrkleiki …









Athugasemdir