Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Segja skatta og opinber gjöld ekki skýra aukna verðbólgu

„Það þarf sam­stillt átak til að ná verð­bólgu niður“

Segja skatta og opinber gjöld ekki skýra aukna verðbólgu
Daði Már Krist­ó­fers­son Er fjár­mála­ráð­herra Íslands Mynd: BHJ

Verð­bólga mæld­ist 5,6 pró­sent í ágúst og jókst frá fyrri mán­uði, í takt við vænt­ingar grein­enda. Samkvæmt upp­lýs­ingum sem birtar hafa verið á vef Stjórn­ar­ráðs­ins verður hækkun verð­bólgu und­an­farna tólf mán­uði ekki rakin til hækk­unar skatta eða gjalda fyrir opin­bera þjón­ustu.

Athygli vekur að Stjórn­ar­ráðið skuli birta sér­staka umfjöllun af þessu tagi um ein­staka verð­bólgu­mæl­ingu, enda er alls ekki algengt að slíkar til­kynn­ingar séu birtar á vef þess í kjöl­far mæl­inga Hag­stof­unnar.

Þar kemur fram að þrátt fyrir breyt­ingar á skrán­ing­ar­gjöldum opin­berra háskóla og aðrar gjald­skrár­breyt­ingar hafi skattar og opin­ber gjöld haft óveru­leg áhrif á verð­bólgu­mæl­ingar að und­an­förnu.

Mæli­kvarðar á tólf mán­aða verð­bólgu, þar sem ann­ars vegar bein áhrif skatta og hins vegar veiga­mestu liðir opin­berrar þjón­ustu eru und­an­skildir, séu nú nán­ast þeir sömu og almenn verð­bólga. Munurinn nemi um eða innan við 0,1 pró­sentu­stigi.

Þá hafi skatta­breyt­ingar í raun vegið til lækk­unar verð­bólgu frá fjórða árs­fjórð­ungi síð­asta árs. Verð­bólga án skatta­á­hrifa hafi hækkað um 0,3 pró­sentu­stigum meira en almenn verð­bólga á tíma­bil­inu. Það skýrist einkum af tíma­bund­inni lækkun virð­is­auka­skatts á elds­neyti.

Að mati Stjórn­ar­ráðs­ins má þess í stað rekja aukna verð­bólgu að veru­legu leyti til til­fallandi eða ytri þátta. Þar vega flug­far­gjöld sér­stak­lega þungt, en hækkun þeirra skýrir ein og sér nærri helm­ing þeirrar aukn­ingar sem orðið hefur á verð­bólgu frá því hún náði lág­marki undir lok síð­asta árs.

„Það þarf sam­stillt átak til að ná verð­bólgu niður og stjórn­völd eru reiðu­búin til þess. Það er sam­eig­in­legt verk­efni okkar og aðila vinnu­mark­að­ar­ins að ná niður vöxtum og verð­bólgu, og við erum til­búin í það sam­tal,“ segir Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum