Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólveig Anna sakar femínista um grófa kvenfyrirlitningu

„Ég er í vit­lausu liði“

Sólveig Anna sakar femínista um grófa kvenfyrirlitningu
Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar Kosn­inga­spenna og harðar deilur Mynd: Facebook/Sólveig Anna

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, sakar fólk sem kennir sig við kven­rétt­indi og femín­isma um grófa kven­fyr­ir­litn­ingu og hræsni í sinn garð. Í opin­berri færslu á sam­fé­lags­miðlum lýsir hún því yfir að hún hafi mætt hörðum per­són­u­árásum og kyn­ferð­is­legum sví­virð­ingum vegna afstöðu sinnar gegn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu.

For­mað­ur­inn segir and­stæð­inga sína ein­blína á það eitt að hún sé í „vit­lausu liði“ í stað þess að ræða mál­efn­an­leg rök hennar, sem lúta meðal ann­ars að vörn fyrir íslenska vinnu­mark­aðs­mód­elið og kjör lág­launa­fólks.

„Perlufesta-kreistingar og ilmsalta-innandanir“

Sólveig Anna seg­ist verða mikið vör við það á Facebook að sumt fólk sé í miklu upp­námi yfir því að hún skuli dirfast að berj­ast gegn ESB-aðild, fyrst og fremst vegna þess með hverjum hún standi í sam­tökum í þeirri bar­áttu. Hún segir fólk sem hún hafi áður þekkt tala um sig eins og „nokk­urs­konar Jezebel, fláráða og spillta“.

„Fólk sem að aldrei hefur sýnt bar­áttu Eflingar-kvenna nokkurn áhuga né stuðn­ing eru í miklum perlu­festa-kreist­ingum og ilm­salta-inn­önd­unum vegna hegð­unar minnar, sem þau fá vart afborið, svo skelfi­leg er hún,“ skrifar Sólveig Anna.

Hún bætir því við að þessum hópi hafi í raun aldrei fund­ist hún í „réttu liði“, sama hvað hún hafi tekið sér fyrir hendur á und­an­förnum árum.

Segir rök sín gegn ESB fara fyrir ofan garð og neðan

Í færsl­unni rekur Sólveig Anna helstu ástæður þess að hún leggst gegn inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið. Hún telur að and­stæð­ingar hennar hafi engan áhuga á að ræða þau rök. Meðal þeirra atriða sem hún nefnir eru:

  • Vörn vinnu­mark­aðs­mód­els­ins: Að verja þurfi íslenska mód­elið sem veiti verka­fólki ríku­leg rétt­indi og mögu­leika á sam­eig­in­legri bar­áttu.
  • Upptaka evru: Að sú ögun á vinnu­mark­aði sem boðuð sé í aðdrag­anda evru­upp­töku muni fyrst og fremst bitna á verka­fólki.
  • Atvinnu­leysi og laun: Hætta á lang­tíma­at­vinnu­leysi auk­ist og fókus á „sam­keppn­is­hæfni“ muni hafa ömur­legar afleið­ingar fyrir til­veru­skil­yrði verka­fólks.
  • Hús­næð­is­mark­að­ur­inn: Að hús­næð­is­mark­aður í löndum ESB sé mjög erf­iður og slæmur fyrir lág­launa­fólk.

„Ekkert af þessum ástæðum hefur náð í gegn. Það eina sem reg­istrerar er að ég er í vit­lausu liði,“ segir hún.

Barátta Eflingar sögð „einskis virði“ í augum gagnrýnenda

Sólveig Anna listar upp langa röð kjara­bóta og sigra sem hún telur Eflingu hafa náð undir sinni for­ystu, en segir gagn­rýnendur sína afskrifa það allt og fela sig á bak við það hvað þeim finnst hún „ömur­leg gella“.

Meðal þess sem hún nefnir sem dæmi um bar­áttu sem sé talin „einskis virði“ í augum þessa hóps eru krónu­tölu­hækk­anir lífs­kjara­samn­ings­ins, leið­rétt­ing á sögu­lega van­metnum kvenna­störfum hjá Reykja­vík­ur­borg, sér­stakar hækk­anir fyrir ræst­inga­fólk og starfs­fólk á hjúkr­un­ar­heim­ilum, sem og bar­átta gegn launa­þjófn­aði og svika-stétt­ar­fé­lögum.

Sakar femínista um grófa kvenfyrirlitningu

For­mað­ur­inn sakar fólk sem kallar sig kven­rétt­inda­sinna og femínista um algjöra þver­sögn og hræsni þegar það grípi til per­sónu­legra og kyn­ferð­is­legra sví­virð­inga þegar það er henni ósam­mála.

„Fólk sem kallar sig kven­rétt­inda­sinna og femínista sér allt í einu ekk­ert að því segja konu sem það er ósam­mála hafa skriðið uppí hjá hinum og þessum eða hún sé nudd­andi sér utan í alls­konar menn,“ segir Sólveig Anna.

Hún spyr hvort þessu fólki finn­ist það vera að gera það auð­veld­ara eða örugg­ara fyrir konur á Íslandi að taka þátt í póli­tík og aktí­visma með því að kalla hana „ból­fé­laga auð­valds­ins, sorg­lega druslu, auð­valdsh**u“ og þaðan af verra.

„Að reyna að þagga niður í konu með svona munn­söfn­uði er skíta-kven­fyr­ir­litn­ing og hluti af langri og ömur­legri hefð sem snýst um að nið­ur­lægja og útbúa stemmn­ingu þar sem að allt sem er sagt verður einskis virði,“ full­yrðir hún.

Sólveig Anna segir það hafa verið „smá sjokker­andi“ að sjá fólk sem hún taldi ágætis kunn­ingja grípa til slíkra orða vegna póli­tískrar skoð­unar, og því hafi hana langað til að segja frá þessu. Hún lýsir því þó yfir að lokum að hún sé hress og bjart­sýn og stefni á að kjósa „nei“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina