Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Það er ykkar Ísland – ekki mitt“

„Fólkið sem aldrei þarf að hafa áhyggjur af því hvort það eigi fyrir því sem það á greiða um mán­að­ar­mótin hefur sigrað“

„Það er ykkar Ísland – ekki mitt“
Signý Sig­urð­ar­dóttir „Ég er rosa­lega sár og reið“ Mynd: Facebook/Signý Sigurðardóttir

Mikil von­brigði er hjá þeim sem vildu kíkja í pakk­ann. Signý Sig­urð­ar­dóttir, við­skipta­fræð­ingur og stjórn­mála­kona, lýsir yfir þungum áhyggjum og miklum von­brigðum í opin­berri færslu þar sem hún sakar meiri­hluta þjóð­ar­innar og áhrifa­mikla hags­muna­að­ila um að fórna fram­tíð­ar­kjörum almenn­ings.

Signý segir nið­ur­stöð­una fela í sér að tæki­færið til að upp­lifa lægri vexti, minni verð­bólgu og aukna erlenda fjár­fest­ingu á Íslandi sé glatað.

Sakar elítuna og bændur um að standa í vegi fyrir breytingum

Í færslu sinni vísar Signý beint til for­ystu­fólks á vinnu­mark­aði og hags­muna­hópa í dreif­býli sem hún telur bera ábyrgð á því að halda Íslandi utan dýpra sam­starfs við nágranna­ríki.

„Meiri­hluti íslensku þjóð­ar­innar með Halldór Benjamín Þor­bergs­son og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í broddi fylk­ingar hefur tryggt það að ég mun ekki fá að sjá breyt­ingar í þessa veru á íslensku sam­fé­lagi í mínu lífi,“ skrifar Signý.

Hún gagn­rýnir sömu­leiðis stöðu íslenskra bænda og telur mál­flutn­ing þeirra vinna gegn nauð­syn­legri sam­keppni: „Íslenskir bændur í dreifðum byggðum lands­ins hafa tekið frá mér tæki­færið að eiga mögu­leika á breyt­ingum á Íslandi sem skipta máli varð­andi sam­keppni og erlenda fjár­fest­ingu.“

„Sá hópur hefur verið í forystu“

Að mati Signýjar er það fólk sem býr við mikið fjár­hags­legt öryggi sem hefur knúið þessa nið­ur­stöðu fram, á kostnað þeirra sem finna harð­ast fyrir íslenska efna­hags­kerf­inu. „Fólkið sem aldrei þarf að hafa áhyggjur af því hvort það eigi fyrir því sem það á greiða um mán­að­ar­mótin hefur sigrað. Sá hópur hefur verið í for­ystu fyrir því að þetta er nið­ur­staðan.“

Signý dregur ekki dul á að ákvörð­unin fái mikið á hana per­sónu­lega og seg­ist vera bæði sár og reið eftir litla svefnró.

„Ég er búin að sofa í 5 tíma og ég er rosa­lega sár. Rosalega sár og reið og þið skuluð ekki láta ykkur detta í hug annað. Ég hef þráð breyt­ingar á gjör­spilltu íslensku sam­fé­lagi allt mitt líf. Þið sem kusuð nei hafið séð til þess að það mun ég ekki sjá í þessu lífi.“

Hún lýkur færsl­unni á svörtu útliti fyrir fram­tíð­ina þar sem hún segir krón­una og fákeppn­ina hafa unnið leik­inn: „Íslensk króna, fákeppni, háir vextir, há verð­bólga. Ísland án áhuga erlendra fjár­festa að koma inn. Það er ykkar Ísland – ekki mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina