Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar

Kallar eftir fjölgun félags­mið­stöðva og lengri opn­un­ar­tíma sund­lauga

Þorgrímur dregur upp dökka mynd af nýjum aðgerðum borgarinnar
Þor­grímur Þrá­ins­son vill sjá mark­vissa for­varn­ar­fræðslu í skólum Mynd: Wikipedia / Kristothorgrims

Rit­höf­und­ur­inn og sam­fé­lags­rýn­ir­inn Þor­grímur Þrá­ins­son lýsir yfir þungum áhyggjum af þróun mála meðal íslenskra ung­menna í opin­berri færslu. Hann kallar eftir taf­ar­lausum og afger­andi aðgerðum frá sam­fé­lag­inu og stjórn­völdum til þess að snúa við því sem hann kallar „óheilla­þróun“. Þor­grímur gagn­rýnir harð­lega núver­andi for­gangs­röðun fjár­magns og segir dæmi­gerð gælu­verk­efni oft tekin fram yfir vel­ferð barna.

Lengri opnunartímar og efling félagsstarfs

Til þess að bregð­ast við vand­anum og mæta ung­mennum á þeirra for­sendum, telur Þor­grímur nauð­syn­legt að ráð­ast í víð­tækar breyt­ingar á tóm­stunda- og félags­starfi. Hann leggur áherslu á að skapa þurfi örugga val­kosti fyrir ung­linga utan skóla­tíma, sér­stak­lega á kvöldin og um helgar þegar hættan á nei­kvæðri iðju er mest.

„Ef við ætlum að snúa þess­ari óheilla­þróun við – verðum við að fjölga félags­mið­stöðvum, opna tóm­stunda­hús og hafa þau opin oftar og um helgar,“ segir Þor­grímur. Hann bendir jafn­framt á hag­nýtar lausnir í nærum­hverf­inu: „Við þurfum að lengja opn­un­ar­tíma sund­lauga á föstu­dags- og laug­ar­dags­kvöldum til að lokka krakka af göt­unum og stöðva ólög­lega sölu áfengra drykkja.“

Gagnrýnir forgangsröðun í skólakerfinu og fjármögnun

Þor­grímur beinir sjónum sínum einnig að mennta­kerf­inu og spyr hvort hefð­bundið náms­efni eigi að hafa for­gang fram yfir lífs­leikni, geð­heilsu og for­varnir á tímum þar sem áskor­anir ung­menna fara vax­andi.

„Og ekki síst þurfum við að bjóða upp á mark­vissa fræðslu í grunn­skólum og fram­halds­skólum. Hvernig getur Gísla saga Súrs­sonar verið mik­il­væg­ari en heilsa og fram­tíð barna okkar?“ spyr hann og lýsir yfir efa­semdum um að nokkur muni grípa bolt­ann. Hann telur sam­fé­lagið mæta þessum vanda af ákveðnu afskipta­leysi. „Líklega eng­inn af því horfum yfir­leitt á svona vanda­mál með blinda aug­anum og höldum að þetta muni redd­ast.“

Að lokum gagn­rýnir hann hvernig opin­beru fé sé ráð­stafað og segir skort á póli­tískum vilja til að fjár­magna raun­veru­legar for­varnir. „Það er ævin­lega til fjár­magn í allskyns gælu­verk­efni en ekki í verk­efni sem skipta ung­menni okkar mestu máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina