Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð

„Það var alveg hrylli­legt“

Magahjáveita Baldvins breyttist í lífshættulega martröð
Baldvin Þor­láks­son, sjó­maður gagn­rýnir und­ir­bún­ing­inn á einka­klíník­inni eftir lífs­hættu­lega blóð­sýk­ingu og sjö end­ur­að­gerðir Mynd: Samsett mynd

Það sem átti að vera ein­föld og hvers­dags­leg maga­hjá­veitu­að­gerð á einka­klíník í Noregi breytt­ist í lífs­hættu­lega martröð fyrir hinn 69 ára gamla Baldvin Þor­láks­son. Í stað þess að létt­ast og öðl­ast betra líf blasti við tíu daga með­vit­und­ar­leysi í önd­un­ar­vél, sjö end­ur­að­gerðir og var­an­leg lík­am­leg skerð­ing. Baldvin og Gunnar Ásgeirs­son, stjórn­andi hlað­varps­ins Litla mallakúts­ins, lýsa skelfi­legri atburða­rás þar sem nýi maginn og vél­indað voru saumuð beint við þann gamla.

Akur­eyr­ing­ur­inn Baldvin Þor­láks­son, fyrr­ver­andi skip­stjóri sem búsettur hefur verið í Noregi í ald­ar­fjórð­ung, ákvað eftir ævi­langa bar­áttu við kílóin að fjár­magna maga­hjá­veitu­að­gerð sjálfur á einka­sjúkra­húsi. Þrjár systur hans höfðu farið í slíka aðgerð með góðum árangri, en sjálfur lýsir hann því að und­ir­bún­ing­ur­inn hjá einka­klíník­inni hafi verið í algjöru lág­marki.

„Und­ir­bún­ing­ur­inn hjá þess­ari „fínu“ einka­klínik var af skornum skammti. Það var hringt í mig dag­inn áður og ég átti að svara ein­hverjum spurn­ingum. Þannig var nú allur und­ir­bún­ing­ur­inn,“ segir Baldvin, en þetta eina stutta sím­tal átti sér stað á meðan hann stóð úti á bens­ín­stöð.

Vaknaði í sjúkraþyrlu og heyrði lækna tala spænsku

Á skurð­ar­borð­inu fór allt á versta veg. Baldvin rank­aði fyrst við sér í sjúkra­þyrlu á leið á háskóla­sjúkra­húsið í Osló, en þá var hann með 3,7 lítra af blóði í kvið­ar­hol­inu. Í kjöl­farið fylgdi 55 daga sam­felld spít­ala­vist þar sem kviðnum var ekki lokað end­an­lega fyrr en 19. júní. Martröð­inni var þó fjarri því lokið.

Þátta­stjórn­and­inn Gunnar Ásgeirs­son lýsir fram­hald­inu á þessa vegu: „Hinn 21. júní fer Baldvin að sýna merki um alvar­lega blóð­sýk­ingu og sýk­ing­ar­lost. Hann er opn­aður aftur og í ljós kemur að nýju sam­skeytin á melt­ing­ar­veg­inum leka. Gall, maga­sýrur og saur­gerlar hafa lekið út í kvið­ar­holið. Hann er kom­inn með líf­himnu­bólgu og alvar­lega sýk­ingu af völdum bakt­ería og sveppa.“

Aðstæður voru svo alvar­legar að læknar neydd­ust til að rjúfa melt­ing­ar­veg­inn tíma­bundið og skilja eftir blinda enda. Baldvin sjálfur minn­ist hryll­ings­ins þegar hann rank­aði tíma­bundið við sér á skurð­ar­borð­inu: „Ég vakn­aði um nótt­ina þegar verið var að skera mig upp. Ég gat ekki betur heyrt en að lækn­arnir væru að tala spænsku. Ég var eig­in­lega hálf­vak­andi, það var alveg hrylli­legt.“

Maginn og vélindað saumað við þann gamla

Fjórum dögum síðar, þann 25. júní, kom í ljós að nýi maga­pok­inn hafði orðið fyrir algjöru drepi vegna súr­efn­is­skorts í lost­inu. Skurð­lækn­arnir urðu að fjar­lægja hann með öllu og grípa til örþrifa­ráðs sem sjaldan er beitt til að bjarga lífi hans.

„Þeir taka vél­indað og sauma það beint við gamla mag­ann sem átti að hvíla óvirkur eftir hjá­veit­una. Þetta þýðir að aðgerðin er bók­staf­lega tekin til baka,“ útskýrir Baldvin. Melt­ing­ar­veg­ur­inn var þá stór­skemmdur og er Baldvin ekki lengur með virkan hring­vöðva á milli vél­inda og maga.

Baldvin stað­festir þetta: „[Þeir] breyttu þess­ari hjá­veitu­að­gerð og settu í sömu stell­ingu aftur. Þannig að ég fékk enga aðgerð til að byrja með.“

Lífstíðarafleiðingar og engin eftirfylgni

Auk þess að fá óráð og örmagn­ast lam­að­ist þindin öðrum megin hjá Baldvini. Læknar tjáðu honum að lík­urnar á að þetta gerð­ist væru aðeins þrjár á móti þús­und og að þeir hefðu aldrei séð svo slæmt til­felli. Afleið­ing­arnar eru var­an­legar.

„Dómurinn er þessi: Hann verður að hvíl­ast með höfuð og efri hluta lík­am­ans hækk­aðan um að lág­marki 30–40 gráður það sem eftir er lífs­ins,“ segir Gunnar um nýjan veru­leika Baldvins.

Þrátt fyrir að eiga rétt á fimm ára eft­ir­fylgni sam­kvæmt skil­málum einka­klíník­ur­innar seg­ist Baldvin enga aðstoð hafa fengið eftir að hann sneri heim af spít­al­anum fyrir hálfum mán­uði. Hann hafi gert mis­tök í matar­æði vegna skorts á leið­bein­ingum, borðað vöfflur, pulsu með öllu og sterkan kjúklinga­rétt með þeim afleið­ingum að hann varð fár­veikur.

„Ég fékk enga eft­ir­fylgni með matar­æði... Nær­ing­ar­fræð­ing­ur­inn hefur ekk­ert hringt. Ég hef ekk­ert heyrt frá henni í hálfan mánuð,“ segir Baldvin að lokum, sem hvetur til þess að einka­væð­ing í skurð­lækn­ingum verði aldrei til þess að afsláttur sé gef­inn af öryggi og fræðslu sjúk­linga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina