Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Baldur og Magnús hafna dylgjum

„Liður í því að hræða fólk“

Baldur og Magnús hafna dylgjum
Magnús Skjöld og Baldur Þór­halls­son Hafna því að vera á launum hjá ESB: „Svo fór um sjó­ferð þá“

Harðar umræður hafa skap­ast á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu daga í kjöl­far frétta­flutn­ings og ummæla um rann­sókna- og kennslu­styrki sem íslenskir fræði­menn hafa hlotið úr sam­keppn­is­sjóðum Evr­ópu­sam­bands­ins í gegnum EES-samn­ing­inn. Tilefnið er dylgjur um að fræði­menn­irnir séu á launum hjá ESB og því ómark­tækir í umræð­unni. Bæði Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði, og Magnús Skjöld, dós­ent, vísa þessum full­yrð­ingum alfarið á bug og segja frétta­stofu Morg­un­blaðs­ins raunar hafa leið­rétt eigin við­mæl­anda.

„Svo fór um sjóferð þá“

Baldur Þór­halls­son vakti athygli á því á sam­fé­lags­miðlum að frétt Morg­un­blaðs­ins hafi í raun hnekkt skrökvu­sögu við­mæl­anda blaðs­ins í Dagmálum, Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar (HHG), sem full­yrti að umræddir fræði­menn væru „laun­aðir af Evr­ópu­sam­band­inu“.

Í ljós kom að í sjálfri frétt­inni var skýrt tekið fram að um væri að ræða fjár­fram­lag vegna kennslu til Háskóla Íslands, en ekki beina eða per­sónu­lega launa­greiðslu til Baldurs.

„Svo fór um sjó­ferð þá,“ segir Baldur og bætir við að fjöldi góðra greina á sam­fé­lags­miðlum hafi útskýrt vel hvernig rann­sókna- og kennslu­styrkir fræði­manna virka í raun.

Verja einn mesta heiður ferilsins

Magnús Skjöld, sem nýverið hlaut hinn virðu­lega Jean Monnet Chair styrk vegna verk­efnis um breytt örygg­is­um­hverfi á norð­ur­slóðum, segir dag­ana á sam­fé­lags­miðlum hafa verið und­ar­lega. Hann hafi ekki átt von á því að þurfa að verja einn mesta heiður sem honum hefur hlotn­ast sem fræði­manni gegn ásök­unum um mútur eða greiðslur fyrir póli­tíska skoðun.

„Ég hef áður tekið fram að vita­skuld er það svo að ekk­ert af þessum fjár­munum renna í minn eigin vasa, enda er það bein­línis tekið fram í reglum sjóðs­ins að slíkt sé alfarið bannað,“ segir Magnús.

Hann útskýrir að Jean Monnet verk­efnið sé alþjóð­legur sam­keppn­is­sjóður á sviði Evr­ópu­fræða sem hafi verið við lýði í ára­tugi. Fjár­mun­irnir fari að mestu í inn­lenda þjón­ustu, vörur, við­burði, inn­flutta sér­fræð­inga og nám­skeiðs­hald við Háskól­ann á Bifröst, en ekki í per­sónu­legan hagnað.

Áhyggjur af „óttastjórnun“ í kjölfar atkvæðagreiðslu

Magnús lýsir yfir þungum áhyggjum af því and­rúms­lofti sem ríkt hefur í kjöl­far atkvæða­greiðsl­unnar um Evr­ópu­mál í lok ágúst. Hann telur dylgjur Hannesar Hólm­steins í garð sín og Baldurs vera lið í skipu­lagðri ótta­stjórnun.

„Þetta er ein­fald­lega liður í því að hræða fólk frá því að tjá skoð­anir sem þeir telja að séu and­stæðar hags­munum þeirra. Og það virkar!“ segir Magnús. Hann nefnir að máls­met­andi fólk hafi veigrað sér við að tjá sig af ótta um starfs­ör­yggi og orð­spor. Að hans mati séu öflin sem „sigr­uðu“ í kosn­ing­unum að láta kné fylgja kviði til að tryggja að umræðan verði ekki tekin upp aftur.

Að lokum bendir Magnús á að það sé furðu lostið hvað ein­falt póli­tískt úrlausn­ar­efni eins og Evr­ópu­sam­bands­að­ild geti kveikt mikla heift, hatur og brigsl um land­ráð eða mútu­þægni í garð fræði­manna sem sækja í akademíska sam­keppn­is­sjóði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina