Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Harðar umræður um gervigreind á íslenskri snyrtistofu

„Auka fingur komi sér vel í fegr­un­ar­að­gerðum!“

Harðar umræður um gervigreind á íslenskri snyrtistofu
Sigrún Lilja Guð­jóns­dóttir, eig­andi The House of Beauty Mynd: The House of Beauty

Harðar umræður sköp­uð­ust inni á Facebook-hópnum Mark­aðsnördar á dög­unum þar sem heilsu- og lík­ams­klíníkin The House of Beauty var sökuð um að fegra ásýnd sína um of með gervi­greind­ar­tækni. Gagn­rýnendur segja mynd­málið á vef­síðu fyr­ir­tæk­is­ins grafa undan trausti á þeim með­ferðum sem þar eru seldar.

Það var Ragn­hildur Jóhanns­dóttir sem hóf umræð­una og benti á að fyr­ir­tækið, sem leggur áherslu á heilsu og raun­veru­legan árangur, skreyti vef­síðu sína með fólki sem búið er til af gervi­greind (AI).

„Skiptir máli að vita hverjum þú getur treyst!“ skrifar Ragn­hildur í færslu sinni. „Þetta segir fyr­ir­tæki sem skreytir sig og alla sína vef­síðu með gervi­greindar fólki, mis margir fingur, mis­jafn bak­grunnur og mögu­lega eru þessar konur ekki einu sinni til.“

Hún bætir því við að ef fyr­ir­tækið sé leitað uppi á Google komi í ljós myndir af raun­veru­legum, flottum konum sem starfa eða starfað hafa þar, og skilur því lítið í þess­ari tækni­væð­ingu mynd­máls­ins. „Eitt er víst að fyr­ir­tæki sem aug­lýsir sig með gervi­greind frá a-ö er ekki treystandi að mínu mati.“

„Auka fingur komi sér vel í fegrunaraðgerðum“

Færsla Ragn­hildar vakti fljótt athygli og fóru með­limir hóps­ins á kostum í athuga­semdum. Meðal þeirra sem tjáðu sig var Sunna Ben, sem sló á létta strengi og sagði: „Tjah kannski auka fingur komi sér vel í fegr­un­ar­að­gerðum!“ en algengur fylgi­fiskur gervi­greind­ar­mynda af fólki er einmitt erf­ið­leikar tækn­innar við að teikna hendur og fingur rétt.

Ekki voru þó allir á sama máli og reyndu sumir að verja stof­una. Kristján Jak­obs­son benti á að um mjög vin­sælt fyr­ir­tæki væri að ræða sem hefði hjálpað mörgum með verki. Sagði hann leið­in­legt að sjá „svona hatur“.

Ragn­hildur svar­aði þeirri gagn­rýni fljótt fullum hálsi og sagð­ist alls ekki vera að ráð­ast á fyr­ir­tækið eða þjón­ust­una sem slíka, heldur ein­ungis vinnu­lagið í mark­aðs­setn­ing­unni.

„Ég set alls ekki út á fyr­ir­tækið sem slíkt enda þekki ég það ekki, en hins­vegar segi ég og stend við það að fyr­ir­tæki sem notar gervi­greind með þessum hætti er ekki treystandi,“ sagði Ragn­hildur og skaut jafn­framt á Kristján fyrir að fara í mann­inn en ekki mál­efnið. „Hate og gagn­rýni eru ekki sami hlut­ur­inn.“

Vaxandi umræða hefur verið í sam­fé­lag­inu um notkun gervi­greindar í aug­lýs­ingum og hvar mörkin liggja þegar kemur að því að sýna raun­veru­legt fólk og raun­veru­legan árangur, sér­stak­lega í geira sem snýr að heilsu og útliti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina