Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Páll sakar Helga um smekkleysi eftir orðaskipti um Karl Th.

„Það hefði verið ‚flott‘ að sýna þetta meðan mað­ur­inn var á lífi“

Páll sakar Helga um smekkleysi eftir orðaskipti um Karl Th.
Páll og Helgi fyrir framan RÚV Mynd: Samsett

Sagn­fræð­ing­ur­inn og vara­borg­ar­full­trú­inn Stefán Pálsson hefur lagt til að RÚV geri útvarps­þætt­ina Orð skulu standa, sem Karl Th. Birg­is­son hafði umsjón með, aðgengi­lega á net­inu til minn­ingar um Karl en greint var frá and­láti hans í fjöl­miðlum í gær.

Stefán setti hug­mynd­ina fram á Facebook og sagði þætt­ina geta átt vel við nú þegar margir leiti sér að hlað­vörpum til hlust­unar.

Brynjólfur Þór Guð­munds­son, blaða­maður RÚV, sagði í umræðum við færsl­una að honum skild­ist að málið væri til skoð­unar og gæti orðið að veru­leika innan skamms. Stór hluti efnis þátt­anna væri tíma­laus, þótt óljóst væri hvernig rétt­inda­málum vegna þeirra væri háttað.

Stefán sagði jafn­framt að hann teldi vanta skýr­ari stefnu hjá RÚV um miðlun eldra efnis. Velti hann því meðal ann­ars upp hvort þróa mætti vef RÚV í átt að Tíma­rita­vefnum og gera þar gam­alt efni aðgengi­legt í stórum stíl, eftir því sem rétt­indi leyfðu.

Brynjólfur sagði „stóra draum­inn“ vera að koma sem mestu efni á vef­inn. Um væri að ræða stórt og kostn­að­ar­samt verk­efni en mikið af eldra efni hefði á síð­ustu árum verið fært yfir á staf­rænt form.

Umræðan varð síðar hvass­ari þegar Páll Bald­vins­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri og blaða­maður sem meðal ann­ars hefur starfað fyrir RÚV, vakti athygli á höf­und­ar­rétt­ar­málum. Hann velti því upp hvort RÚV hefði á sínum tíma keypt allan rétt að þátt­unum eða hvort samn­ingar hefðu aðeins gert ráð fyrir til­tek­inni notkun í tak­mark­aðan tíma.

Helgi Seljan, frétta­maður RÚV, svar­aði Páli með kald­hæðnum hætti og sagði til­efnið „aldeilis flott til að tuða yfir end­ur­flutn­ingi á efni og aðgengi­leika þess, sem ger­ist auð­vitað gratís“.

Páll brást við og sagði orðið „flott“ vart eiga við. „Það hefði verið ‚flott‘ að sýna þetta meðan mað­ur­inn var á lífi,“ skrif­aði hann og lagði áherslu á að end­ur­flutn­ingur efnis væri háður rétt­indum.

Helgi skýrði þá að um kald­hæðni hefði verið að ræða og sagð­ist fremur hafa verið að „hnýta í þennan status“. Hann benti jafn­framt á að ekki væri langt síðan þættir Karls um Frændur okkar í Persíu hefðu verið end­ur­fluttir og gerðir aðgengi­legir.

„Það verður auk þess og er þegar búið að leggja grunn að því að birta meira af efn­inu hans,“ skrif­aði Helgi.

Páll svar­aði því að lokum með beittum orðum og sagði: „Svona af því að mað­ur­inn var rétt orð­inn kaldur. Smekkvís strákur Helgi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina