Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið

Umboðs­maður Alþingis var ekki sáttur

Lögreglustjóri og ríkissaksóknari teknir á beinið
Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Mynd: Víkingur

Umboðs­maður Alþingis hefur gert athuga­semdir við með­ferð lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og rík­is­sak­sókn­ara á máli tveggja ein­stak­linga sem kvört­uðu vegna eigna­spjalla sem þau töldu sig hafa orðið fyrir.

Lög­reglu­stjór­inn hafði ákveðið að hætta rann­sókn máls­ins og stað­festi rík­is­sak­sókn­ari þá ákvörðun. Umboðs­maður komst hins vegar að þeirri nið­ur­stöðu að ýmsir ann­markar hefðu verið á máls­með­ferð stjórn­vald­anna.

Í áliti umboðs­manns kemur meðal ann­ars fram að lög­regla hafi ekki sinnt leið­bein­ing­ar­skyldu sinni með full­nægj­andi hætti. Ekki hafi verið leið­réttur grund­vall­armis­skiln­ingur sem gætti hjá ein­stak­ling­unum við skýrslu­töku og leið­bein­ing­ar­bréf sem þeim var afhent hafi getað verið vill­andi.

Þá taldi umboðs­maður að málið hefði ekki verið nægi­lega upp­lýst áður en rann­sókn þess var hætt. Ein­stak­ling­unum hefði ekki gef­ist kostur á að koma afstöðu sinni á fram­færi áður en tíma­mörk, sem lög­reglan hafði sjálf til­greint, runnu út.

Einnig voru gerðar athuga­semdir við máls­með­ferð rík­is­sak­sókn­ara. Emb­ætt­inu hefði borið að rann­saka betur í hvaða far­veg ein­stak­ling­arnir vildu leggja málið og leið­beina þeim um hvernig krafa um máls­höfðun þyrfti að vera úr garði gerð til að upp­fylla skil­yrði laga.

Umboðs­maður lagði jafn­framt áherslu á mik­il­vægi máls­hraða þegar brota­þolum er settur frestur til að gera kröfu um máls­höfðun. Tryggja þurfi að tafir leiði ekki til rétt­ar­spjalla, líkt og varð í þessu máli þegar frestur rann út.

Umboðs­maður lauk mál­inu með áliti 17. júlí 2026. Álitið var síðan birt á vef umboðs­manns föstu­dag­inn 25. sept­em­ber.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina