Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald vegna gruns um alvarlega líkamsárás á konu á fertugsaldri í íbúð í fjölbýlishúsi í Kópavogi í gærkvöldi.
Maðurinn var handtekinn á vettvangi eftir að lögreglu barst tilkynning um árásina. Hann er grunaður um að hafa ráðist á konuna inni í íbúðinni.
Konan var flutt á slysadeild til aðhlynningar vegna alvarlegra áverka.
Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 27. október á grundvelli almannahagsmuna. Lögreglan heldur rannsókn málsins áfram.
Að svo stöddu hefur lögregla ekki veitt frekari upplýsingar um málið.































Athugasemdir