Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum

Í útlend­inga­málum vill hreyf­ingin draga veru­lega úr mót­töku flótta­fólks

Ungir Miðflokksmenn vilja banna „tískuhugmyndir um kyn og kynlíf“ í skólum
Ný stjórn Ungra Mið­flokks­manna Mynd: Aðsend

Salma Björk Önnu­dóttir var kjörin nýr for­maður ung­liða­hreyf­ingar Mið­flokks­ins á auka­að­al­fundi hreyf­ing­ar­innar í Hamra­borg. Hún tekur við for­mennsku af Antoni Sveini McKee, sem gegnt hefur emb­ætt­inu síð­ustu tvö ár.

Jón Hjörtur Kröyer var kjör­inn vara­for­maður en auk hans voru fimm aðrir kjörnir í stjórn.

Á fund­inum sam­þykktu ungir Mið­flokks­menn umfangs­mikla ályktun um meðal ann­ars fjöl­skyldu-, skóla-, hinsegin- og útlend­inga­mál auk stöðu íslenskrar tungu.

Í skóla­málum gagn­rýnir hreyf­ingin skóla án aðgrein­ingar og vill styrkja stöðu sér­skóla og sér­deilda. Þá er aðal­námskrá frá árinu 2011 gagn­rýnd og lagt til að aukin áhersla verði lögð á lestur, rétt­ritun og reikn­ing.

Hreyf­ingin hafnar jafn­framt því að utan­að­kom­andi sam­tök séu fengin „til að kenna börnum tísku­hug­myndir um kyn og kyn­líf“ en vænt­an­lega er verið að vísa í Samtökin 78 í þeim efnum. Kyn­fræðsla eigi þess í stað að vera í höndum kenn­ara og for­eldra. Rétt er þó að taka fram að Samtökin 78 sjá ekki um kyn­fræðslu­kennslu í skólum heldur er slíkt í höndum kenn­ara. Þá leggst hreyf­ingin gegn kyn­þroska­bælandi með­ferðum og kross­horm­óna­með­ferðum fyrir börn undir 18 ára aldri.

Í útlend­inga­málum vill hreyf­ingin draga veru­lega úr mót­töku flótta­fólks og leggja meiri áherslu á aðstoð í heima­högum. Einnig verði gerðar strang­ari kröfur til rík­is­borg­ara­réttar og aðlög­unar að íslensku sam­fé­lagi. Þá styður hreyf­ingin bann við til­teknum íslömskum klæða­burði og hafnar til­slök­unum vegna halal- og kos­her-slátr­unar.

Að lokum er lögð rík áhersla á íslenska tungu. Hreyf­ingin vill að stjórn­sýsla, þjón­usta og aug­lýs­ingar séu á íslensku og að fólk greiði almennt sjálft fyrir túlka­þjón­ustu eftir meira en tólf mán­aða dvöl hér á landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum