Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hundrað tonna bor leitar að vatni í Laugardalnum

Fram­kvæmdir standa fram á næsta vor

Hundrað tonna bor leitar að vatni í Laugardalnum
Laug­ar­dalur Borað verður eftir vatni á Engja­teigi Mynd: Víkingur

Flutn­ingur á um 100 tonna bor­bún­aði í Laug­ar­dal­inn hófst í dag þar sem Veitur hyggj­ast bora eftir heitu vatni á tveimur stöðum til að tryggja afhend­ingar­ör­yggi hita­veit­unnar í Reykja­vík. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Veitum.

Borun hefst við Engja­teig í næstu viku og stendur fram á vorið 2027. Þá verður einnig borað við Bolholt, en sú borun hefst síðar og verður mun skemmri.

Markmið fram­kvæmd­anna er að auka afhend­ingar­ör­yggi heita vatns­ins og mæta auk­inni eft­ir­spurn vegna fólks­fjölg­unar og upp­bygg­ingar í sam­fé­lag­inu.

Laug­ar­dal­ur­inn hefur sér­stakan sess í sögu hita­veitu Reykja­víkur, eins og fram kemur í til­kynn­ingu Veitna. Jarðhiti á svæð­inu hefur verið nýttur til upp­hit­unar í nærri öld og eru níu bor­holur nú þegar í notkun þar.

„Það er auð­velt að gleyma því í dags­ins önn að undir göt­unum, hús­unum og görð­unum okkar er jarð­hita­auð­lind sem gegnir lyk­il­hlut­verki í dag­legu lífi borg­ar­búa,“ segir Brynja Ragn­ars­dóttir, for­stöðu­kona Vatns­miðla hjá Veitum.

Hún segir fram­kvæmd­ina bæði snú­ast um að tryggja þjón­ustu til fram­tíðar og halda áfram langri sögu jarð­hita­nýt­ingar í Reykja­vík.

Má búast við gufu á framkvæmdarsvæðinu

Borun eftir heitu vatni í miðri borg krefst umfangs­mik­ils und­ir­bún­ings og verða fram­kvæmda­svæðin afmörkuð. Veitur segj­ast ætla að halda íbúum, rekstr­ar­að­ilum og veg­far­endum upp­lýstum um fram­gang verk­efn­is­ins meðan á fram­kvæmdum stendur.

Þráinn Frið­riks­son, auð­linda­leið­togi hita­veitu hjá Orku­veit­unni, segir að þótt jarð­hit­inn á svæð­inu sé vel þekktur gefi hver ný bor­hola mik­il­vægar upp­lýs­ingar um auð­lind­ina.

„Við erum í raun að horfa niður í jarð­hita­kerfi sem er ósýni­legt frá yfir­borði og leita að leiðum til að nýta það með ábyrgum og sjálf­bærum hætti,“ segir hann.

Þegar bor­holan verður prófuð má búast við því að gufa sjá­ist á fram­kvæmda­svæð­inu. Veitur segja það eðli­legan hluta af bor­un­inni og verði íbúum og veg­far­endum gert við­vart áður en það ger­ist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina