Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands

Þor­gerður Katrín hafn­aði því alfarið að segja sig frá mál­inu

Sigríður segir Þorgerði Katrínu ekki hæfa til að fara með mál Íslands
Sigríður Á. Andersen Er fyrr­ver­andi ráð­herra og núver­andi þing­maður. Mynd: Víkingur

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, telur Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra ekki hæfa til að fara með mála­rekstur Íslands vegna máls­höfð­unar Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, fyrir EFTA-dóm­stólnum. Þær tók­ust á um málið á Alþingi í dag.

ESA vís­aði máli Íslands til EFTA-dóm­stóls­ins í lok sept­em­ber vegna bók­unar 35 við EES-samn­ing­inn. Stofn­unin telur að íslensk lög tryggi ekki með full­nægj­andi hætti að inn­leiddar EES-reglur gangi framar öðrum íslenskum laga­á­kvæðum þegar árekstur verður þar á milli. ESA hafði fyrst uppi athuga­semdir vegna máls­ins árið 2012 og hóf form­legt samn­ings­brota­mál árið 2017.

Kallaði eftir upplýsingum um varnir Íslands

Sigríður kall­aði eftir svörum frá utan­rík­is­ráð­herra um hvernig stjórn­völd hygð­ust bregð­ast við máls­höfð­un­inni og hvort vinna væri hafin við grein­ar­gerð Íslands til EFTA-dóm­stóls­ins. Spurði hún meðal ann­ars hverjir kæmu að þeirri vinnu og hverjir myndu skipa það teymi sem færi með varnir Íslands.

„Ég vil vita hvort hæstv. ráð­herra hafi hafið vinnu við gerð þess­arar grein­ar­gerðar, hverjir það eru sem koma að þeirri vinnu, hverjir munu skipa teymi, hvað á maður að segja, verj­enda Íslands gagn­vart EFTA-dóm­stólnum í þess­ari máls­höfðun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA,“ sagði Sigríður.

Þor­gerður Katrín sagði málið nú komið til með­ferðar utan­rík­is­mála­nefndar og að sam­ráð yrði haft við nefnd­ina. Hún lagði jafn­framt áherslu á að stjórn­völd myndu halda uppi vörnum fyrir Ísland, en um leið standa við skuld­bind­ingar lands­ins sam­kvæmt EES-samn­ingnum.

„Auðvitað bind ég vonir við að það verði hægt að klára þetta fyrir þennan tíma en að sjálf­sögðu munum við gera það sem þarf til að halda uppi vörnum Íslands,“ sagði Þor­gerður Katrín.

ESA segir að bókun 35 geri EFTA-ríkj­unum innan EES skylt að tryggja að inn­leiddar EES-reglur njóti for­gangs gagn­vart öðrum lands­rétt­ar­reglum sem rekast á þær. Stofn­unin telur að nauð­syn­legar laga­legar trygg­ingar séu enn ekki fyrir hendi á Íslandi.

Segir ráðherrann ekki hæfa

Sigríður gekk lengra í seinni ræðu sinni og dró hæfi Þor­gerðar Katrínar til að fara með málið í efa. Vísaði hún til afstöðu ráð­herr­ans til skuld­bind­inga Íslands sam­kvæmt EES-samn­ingnum og spurði hvort ráð­herr­ann ætti að segja sig frá mál­inu.

„Í ljósi ummæla hæstv. utan­rík­is­ráð­herra í þessu svari til mín tel ég nú ein­sýnt að hæstv. utan­rík­is­ráð­herra sé í sjálfu sér ekki hæf til þess að fara með mála­rekstur fyrir Íslands hönd,“ sagði Sigríður.

Hún spurði jafn­framt hvort Þor­gerður Katrín teldi að ESA bæri skylda til að fella mála­rekst­ur­inn niður yrði þing­málið um bókun 35 sam­þykkt fyrir 30. nóv­em­ber.

Þor­gerður Katrín hafn­aði því alfarið að segja sig frá mál­inu og sagði ágrein­ing­inn í grunn­inn póli­tískan. Hún sagði rík­is­stjórn­ina ætla að standa vörð um EES-samn­ing­inn og tryggja að hann héldi gildi sínu fyrir íslenskan almenn­ing og atvinnu­líf.

„Að sjálf­sögðu mun ég ekki fara frá þessu máli af því að þetta er á end­anum póli­tík,“ sagði Þor­gerður Katrín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum