Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Fuglainflúensa greininst í villtum fuglum á Íslandi

Mat­væla­stofnun hafa und­an­farnar vikur borist fjöl­margar ábend­ingar um veika og dauða villta fugla víða um land. Við rann­sókn á sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Norð­ur­landi, Suð­vest­ur­landi og Suð­aust­ur­landi frá miðjum sept­em­ber fram í októ­ber greind­ist skæð fugla­in­flú­ensa af gerð­inni H5N5. Þetta stað­festi Til­rauna­stöð Háskóla Íslands í meina­fræði að Keldum. Sýni frá öðrum lands­hlutum bíða nið­ur­stöðu grein­ingar.

Sýnataka úr veikum eða dauðum villtum fuglum er liður í stöðugri vöktun Mat­væla­stofn­unar á fugla­in­flú­ensu hér á landi. Um er að ræða fyrstu grein­ingar skæðrar fugla­in­flú­ensu hér á landi síðan í vor. Síðast greind­ist fugla­in­flú­ensa í heiða­gæs við Höfn í Horna­firði í apríl 2026.

Fyrstu jákvæðu fugla­in­flú­ensu­sýnin í haust voru úr fuglum sem fund­ust á Blöndu­ósi, Skaga­strönd og við Sauð­ár­krók um miðjan sept­em­ber. Um var að ræða hettu­máf, skúm, tvo svart­baka og síla­máf. Í kjöl­farið bár­ust fleiri ábend­ingar um veika og dauða fugla. Fjórir fuglar á Húsavík reynd­ust smit­aðir og auk þess greind­ist smit í fuglum sem fund­ust við Jök­ulsár­lón á Suð­aust­ur­landi. Nýjustu nið­ur­stöður sýna jafn­framt að átta máfar sem fund­ust dauðir í Sand­gerði á Reykja­nesi reynd­ust einnig smit­aðir af skæðri fugla­in­flú­ensu af gerð­inni H5N5.

Til­kynn­ingum um veika og dauða fugla hefur fjölgað að und­an­förnu og bendir það til þess að veiran sé farin að dreifast meðal villtra fugla hér á landi á ný. Mat­væla­stofnun fylgist náið með þró­un­inni með við­eig­andi sýna­tökum. Fleiri sýni eru nú til rann­sóknar og nið­ur­staðna þeirra er að vænta innan skamms.

Frá haustinu 2025 hafa bæði afbrigði skæðrar fugla­in­flú­ensu, H5N5 og H5N1, greinst hér á landi. H5N5 hefur þó verið algeng­ara afbrigðið í villtum fuglum á þessu tíma­bili. Sýnin sem nú hafa greinst verða send til frek­ari erfða­grein­ingar (rað­grein­ingar) til að afla nán­ari upp­lýs­inga um upp­runa og skyld­leika veirunnar.

Á þessu stigi er lítið vitað um umfang útbreiðsl­unnar, en grein­ing­arnar sýna að veiran er til staðar á Norð­ur­landi, Suð­vest­ur­landi og Suð­aust­ur­landi. Mat­væla­stofnun mun áfram fylgj­ast náið með stöð­unni og birta upp­lýs­ingar eftir því sem nýjar nið­ur­stöður ber­ast.

Óvissu­stig er áfram í gildi vegna auk­innar smit­hættu fyrir ali­fugla og aðra fugla í haldi frá villtum fuglum.

Fugla­eig­endur hvattir til árvekni og öfl­ugra sótt­varna

Fjölgun á fugla­in­flú­ensu­grein­ingum í villtum fuglum und­ir­strika mik­il­vægi þess að ali­fugla­bændur og aðrir fugla­eig­endur séu vel á verði og við­hafi öfl­ugar sótt­varnir til að draga úr hættu á að smit ber­ist frá villtum fuglum í fugla í haldi.

Mat­væla­stofnun hefur upp­lýstali­fugla­bændur um stöð­una og leið­beint um hertar sótt­varnir. Aðrir fugla­eig­endur eru jafn­framt hvattir til að tryggja öfl­ugar smit­varnir og fylgj­ast vel með heilsu­fari fugla sinna. Tilkynna skal taf­ar­laust til Mat­væla­stofn­unar ef vart verður um sjúk­dóms­ein­kenni í fuglum eða óvenju­leg dauðs­föll.

Almenn­ingur hvattur til að til­kynna veika og dauða villta fugla

Mat­væla­stofnun hvetur almenn­ing áfram til að til­kynna stofn­un­inni um veika og dauða villta fugla og villt spen­dýr sem finn­ast, nema það sé aug­ljóst að dýrið hafi drep­ist af slys­förum. Slíkar til­kynn­ingar eru afar mik­il­vægar fyrir vöktun stofn­un­ar­innar á útbreiðslu fugla­in­flú­ensu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina