Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

„Frakkar verða núna að bregð­ast af hörku við þessum veru­leika“

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað
Stefán Einar Stef­áns­son Mynd: BHJ

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Stefán Einar Stef­áns­son gagn­rýnir Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta harð­lega vegna óeirða sem geisað hafa í Frakk­landi und­an­farna daga og telur inn­flytj­enda­stefnu lands­ins eiga stóran þátt í þeirri stöðu sem upp er komin.

Stefán Einar fjallar um málið í færslu á Facebook og segir Macron hafa brugð­ist þeim vænt­ingum sem gerðar voru til hans þegar hann var fyrst kjör­inn for­seti árið 2017. Hann segir Frakk­land hafa verið leitt í öng­stræti vegna vondra ákvarð­ana, stefnu­leysis og linkindar gagn­vart vanda­málum sem hafi safn­ast upp.

„Hann hefur hins vegar stefnt hinu mikla menn­ing­ar­ríki í algjört öng­stræti með vondum ákvörð­unum, stefnu­leysi og lin­kind gagn­vart vanda­málum sem hlað­ist hafa upp fyrir allra augum,“ skrifar Stefán Einar.

Í færsl­unni rekur hann óeirð­irnar til inn­flytj­enda­stefnu Frakka og segir stjórn­völd hafa treyst um of á inn­gild­ingu og það sem hann lýsir sem mis­skil­inni góð­mennsku. Hann telur nauð­syn­legt að grípa til mun harð­ari aðgerða og gengur meðal ann­ars svo langt að leggja til brott­flutn­ing fólks úr landi, þar á meðal ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­enda sem taki þátt í óeirð­unum.

„Frakkar verða núna að bregð­ast af hörku við þessum veru­leika. Þessi vandi verður ekki leystur nema með því að flytja óynd­is­menn­ina úr landi og aftur til sinna upp­runa­ríkja, það á einnig við um ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­endur sem þarna eiga í hlut,“ skrifar hann.

Frönsk stjórnvöld benda á aðrar ástæður

Skýr­ingar Stefáns Einars á óeirð­unum eru þó ekki í sam­ræmi við þær meg­in­á­stæður sem frönsk stjórn­völd hafa sjálf nefnt opin­ber­lega.

Macron hefur sagt að stjórn­völd þurfi að hlusta á reiði og lög­mætar kröfur mót­mæl­enda, meðal ann­ars vegna fram­færslu­kostn­aðar og stöðu mennta­kerf­is­ins. Hann hefur jafn­framt for­dæmt ofbeldið harð­lega og kennt öfga­hópum lengst til vinstri og afbrota­mönnum um að hafa nýtt mót­mælin til að skapa óreiðu.

For­sæt­is­ráð­herr­ann Sébastien Lecornu hefur tekið í svip­aðan streng og lagt áherslu á að rétt­ur­inn til frið­sam­legra mót­mæla verði tryggður. Frönsk stjórn­völd hafa þannig gert grein­ar­mun á þeim fjöl­mörgu sem mót­mælt hafa frið­sam­lega og þeim hópum sem staðið hafa að ofbeldi, skemmd­ar­verkum og ránum.

Frönsk stjórn­völd hafa ekki lagt fram þá skýr­ingu að múslimar, fólk frá Mið-Aust­ur­löndum eða inn­flytj­endur almennt beri ábyrgð á óeirð­unum. Opin­berar skýr­ingar þeirra hafa fremur beinst að ofbeld­is­fullum öfga­hópum og afbrota­mönnum sem hafi blandað sér í mót­mælin.

Umfang óeirð­anna hefur engu að síður verið mikið. Meira en 2.500 manns hafa verið hand­teknir og nærri eitt þús­und lög­reglu­menn særst. Þá hafa frönsk stjórn­völd hert örygg­is­ráð­staf­anir og gripið til tíma­bund­inna útgöngu­banna á afmörk­uðum svæðum.

Stefán Einar telur að reynslan í Frakk­landi eigi jafn­framt erindi við önnur Evr­ópu­ríki, þar á meðal Ísland. Hann segir nauð­syn­legt að bregð­ast við af hörku og tryggja alls­herj­ar­reglu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina