Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

„Það skiptir nefni­lega máli fyrir fatlað fólk hverjir stjórna land­inu“

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Sig­mundur Ernir Rún­ars­son Er þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Víkingur

Sig­mundur Ernir Rún­ars­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrrum fjöl­miðl­ar­maður, var­aði við mögu­legu bakslagi í rétt­indum fatl­aðs fólks í ræðu sinni undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Sagði hann mik­il­vægt að standa vörð um þann árangur sem náðst hefði á und­an­förnum 50 árum.

Sig­mundur Ernir rifj­aði upp þær miklu sam­fé­lags­breyt­ingar sem urðu á Íslandi fyrir um hálfri öld og nefndi meðal ann­ars stofnun sam­taka á borð við SÁÁ, Samtökin '78, Geðhjálp og Þroska­hjálp. Þroska­hjálp fagnar hálfrar aldar afmæli um þessar mundir.

„Hvað hefur breyst á þessum tíma? Allt. Það hefur allt breyst á þessum tíma, þökk sé eilífri bar­áttu for­eldra og ann­arra framá­manna í þessum geira,“ sagði Sig­mundur Ernir.

Hann sagði stöðu fatl­aðs fólks hafa verið allt aðra fyrir 50 árum. Atvinnu­þátt­taka hefði verið lítil sem engin, mennt­un­ar­mögu­leikar fáir og þátt­taka í sam­fé­lag­inu veru­lega tak­mörkuð. Fatlað fólk hefði jafn­framt verið vistað á stofn­unum þar sem aðstæður væru gjör­ó­líkar því sem þekk­ist í dag.

Sig­mundur Ernir sagði miklar fram­farir hafa orðið síðan þá, meðal ann­ars þegar kemur að atvinnu­þátt­töku, fram­halds­menntun og háskóla­námi fatl­aðs fólks. Hann sagði breyt­ing­arnar vera afrakstur ára­tuga­langrar mann­rétt­inda­bar­áttu.

Varar við bakslagi

Þrátt fyrir fram­far­irnar sagð­ist Sig­mundur Ernir hafa áhyggjur af umræðu sem heyrð­ist nú innan sveit­ar­fé­laga um kostnað vegna þjón­ustu við fatlað fólk.

„Við verðum hins vegar að hugsa sem svo að bakslagið sem nú heyr­ist í sveit­ar­fé­lögum lands­ins er á að giska það að þessi mála­flokkur sé orð­inn of dýr,“ sagði hann.

Hann lagði jafn­framt áherslu á mik­il­vægi þess að rík­is­stjórnin lög­festi samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Slík lög­fest­ing væri að hans mati mik­il­væg vörn gegn því að gengið yrði á rétt­indi hóps­ins.

„Það skiptir nefni­lega máli fyrir fatlað fólk hverjir stjórna land­inu,“ sagði Sig­mundur Ernir að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ