Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“

Atli Þór Fanndal hjólar í bæj­ar­stjóra Ölfuss

„Elliði vinnur þá skítavinnu að venja okkur við rasisma“
Elliði Vign­is­son Bæj­ar­stjóri Ölfuss hefur fengið yfir sig skammir und­an­farið Mynd: Aðsend

Atli Þór Fanndal Guð­laugs­son gagn­rýnir Elliða Vign­is­son, bæj­ar­stjóra Ölfuss, harð­lega fyrir að birta fimm ára gamla ljós­mynd frá Svíþjóð í færslu um ástandið í Frakk­landi. Fjöl­margir hafa gagn­rýnt færsl­una og sakað Elliða um að ala á for­dómum. Bæj­ar­stjór­inn segir hins vegar að óheftur straumur inn­flytj­enda, sér­stak­lega múslima, valdi skaða í Evrópu.

Elliði Vign­is­son, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Vest­manna­eyja, vakti hörð við­brögð á Facebook eftir að hann birti ljós­mynd af hópi ungra manna í tengslum við mót­mæli og óeirðir í Frakk­landi. Myndin reynd­ist hins vegar vera nokk­urra ára gömul og tekin í Hjällbo, úthverfi Gauta­borgar í Svíþjóð.

Elliði birti mynd­ina með orð­unum:

„Hér má sjá nem­enda­fé­lag fram­halds­skóla í Frakk­landi kalla eftir betri aðstöðu í skól­anum sínum, ....eða hvað?“

Síðar bætti hann við athuga­semd innan sviga: „Bætt við eftir á ...að gefnu til­efni, á þess­ari mynd eru hvorki Frakkar né nem­endur.“

DV sagði frá því að færslan hafi miklar umræður og gagn­rýni frá ýmsum þjóð­þekktum ein­stak­lingum, meðal ann­ars tón­list­ar­mann­inum Bubba Morthens, rit­höf­und­inum Illuga Jök­uls­syni og prest­inum Bjarna Karls­syni. Lög­mað­ur­inn Sveinn Andri Sveins­son gagn­rýndi einnig bæj­ar­stjór­ann.

Illugi skrif­aði: „Mikið er þetta inni­lega inni­lega lág­kúru­legt, Elliði.“

Bubbi beindi einnig orðum að bæj­ar­stjór­anum: „Elliði þetta er ekki þér líkt, þú ert stærri en þetta ef ég þekki þig rétt.“

Sveinn Andri Sveins­son lög­maður var enn harð­orð­ari og skrif­aði: „Þú ert nú meiri for­dómapés­inn.“

Elliði svar­aði honum með háði og spurði hvort hann ætti við að bæj­ar­stjór­inn hefði for­dóma gagn­vart nem­enda­fé­lögum. Þegar Sveinn Andri benti á að myndin væri gömul og tengd­ist ekki mót­mæl­unum í Frakk­landi svar­aði Elliði: „Er ekki ras­ista spilið orðið dáldið þreytt? Held að þið séuð búin að þynna það hættu­lega mikið.“

Atli Þór segir myndina notaða til að ýta undir fordóma

Atli Þór Fanndal Guð­laugs­son, verk­efna­stjóri á skrif­stofu rekt­ors við Háskól­ann á Bifröst, tekur undir gagn­rýn­ina í Facebook-færslu í dag þar sem hann sakar Elliða um að dreifa upp­lýs­ingum sem stand­ist ekki skoðun og nota ljós­mynd­ina til að ýta undir ótta og for­dóma gagn­vart fólki með dökka húð.

„Hann Elliði er auð­vitað upp­lýs­inga­óreiða í mann­legu formi. Auðvitað deilir hann ein­hverju rugli og falsi frá slef­krókum inter­nets­ins,“ skrifar Atli.

Hann segir að vand­inn snú­ist ekki aðeins um að ljós­myndin hafi verið sett fram í röngu sam­hengi, heldur einnig um þau skila­boð sem hann telur að felist í birt­ing­unni.

„Það er auð­vitað tærasta form ras­isma að birta mynd af hópum manna með dökka húð – að gera nákvæm­lega ekk­ert á mynd­inni annað en að vera til, til að grafa undan mót­mælum og hræða fólk,“ skrifar Atli.

Hann vísar til hug­taks­ins racial prim­ing, sem lýsir því þegar vís­anir til kyn­þáttar eða húð­litar eru not­aðar til að hafa áhrif á við­horf fólks og kalla fram ákveðin hug­renn­inga­tengsl.

Atli telur að með slíkri fram­setn­ingu sé verið að venja fólk við rasísk við­horf og skapa and­stæðu milli þeirra sem til­heyra eigin hópi og þeirra sem eru skil­greindir sem utan­að­kom­andi.

„Elliði vinnur þá skíta­vinnu að venja okkur við ras­isma,“ skrifar hann.

Atli leggur áherslu á að ekk­ert á ljós­mynd­inni sýni að menn­irnir séu að fremja afbrot eða aðhaf­ist eitt­hvað sem rétt­læti nei­kvæða túlkun á þeim.

„Á mynd­inni er hópur ungra manna. Á mynd­inni er hópur ungra manna með dökka húð. Á mynd­inni er hópur manna sem klæð­ast tísku ungra manna. Á mynd­inni er hópur manna sem má alveg mót­mæla,“ skrifar hann og bætir við: „Á mynd­inni er engin sönnun um neitt illt. Það getur vel verið að þarna séu engir kór­drengir en það er ekk­ert á mynd­inni sem kallar eftir nei­kvæðum við­brögðum nema að þú sért lít­ill hræddur auli með svarta áru eins og hann Elliði litli. Það er engin til­viljun að svona smá­menni hóp­ist saman í Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn.“

Elliði segir innflytjendastefnuna valda skaða

Elliði hefur hafnað þeirri gagn­rýni að færsla hans sé rasísk og beinir sjónum sínum að inn­flytj­enda­stefnu Evr­ópu­ríkja.

Í svari við gagn­rýni Bjarna Karls­sonar segir hann að atburð­irnir í Frakk­landi séu afleið­ingar stefnu sem Bjarni og skoð­ana­systk­ini hans hafi talað fyrir.

„Í Frakk­landi erum við ein­fald­lega að sjá afleið­ingar af þeirri stefnu sem þú og skoð­ana­systkin þín hafa talað fyrir. Ég veit að fyrir ykkur vakir ekk­ert illt en það gerir afleið­ing­arnar af þessu ekki bæri­legri,“ skrifar Elliði.

Hann heldur áfram: „Óheftur straumur inn­flytj­enda, sér­stak­lega múslima, er að valda skaða. Þess vegna eru nágrannar okkar að reyna að vinda ofan af þessu.“

Elliði vísar meðal ann­ars til þró­unar í löndum á borð við Norð­ur­löndin, Þýska­land, Bretland og Holland.

Þegar honum er bent á að ljós­myndin sé ekki frá Frakk­landi svarar hann meðal ann­ars: „Ó, ekki nem­enda­fé­lag í Frakk­landi, ég þarf greini­lega að gæta að mér.“

Hann spyr jafn­framt einn þeirra sem gagn­rýna hann: „Heldur þú í alvöru að ég hafi haldið að þetta væru nem­endur?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina