Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

„Handrit og leik­stjórn eru alger­lega í höndum emb­ætt­is­manna“

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir Mynd: Alþingi

Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir, þing­maður Mið­flokks­ins, gagn­rýndi harð­lega fyr­ir­komu­lag við skipan í stjórnir rík­is­fyr­ir­tækja á Alþingi í dag og sak­aði fjár­mála­ráð­herra um að fela sig á bak við val­nefndir. Hún sagði emb­ætt­is­menn hafa fengið of mikil áhrif á skipan stjórn­anna og beindi sér­stak­lega sjónum sínum að Viðreisn.

Nanna Margrét sagði að svar Daða Más Krist­ó­fers­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn hennar sýndi að val­nefndir væru langt frá því að koma að öllum stjórn­ar­skip­unum á vegum ráðu­neyt­is­ins.

Samkvæmt henni skipar fjár­mála­ráð­herra í stjórnir 30 félaga en aðeins í 12 þeirra sé stuðst við val­nefnd. Ráð­herr­ann skipi sjálfur val­nefnd­ina sem skili honum tveimur nöfnum fyrir hvert stjórn­ar­sæti og velji hann síðan á milli þeirra.

Í öðrum félögum sé farið eftir til­lögum ráðu­neyt­is­ins. Nanna Margrét sagði það þýða að emb­ætt­is­menn hefðu veru­leg áhrif á hverjir velj­ast til stjórn­ar­setu.

„Alls sitja starfs­menn ráðu­neyt­is­ins í 33 stjórn­ar­sætum sem aðal- eða vara­menn og meira að segja í félögum þar sem er val­nefnd,“ sagði Nanna Margrét og spurði hvort yfir höfuð hefði verið aug­lýst eftir fólki til setu í við­kom­andi stjórnum.

Hún sagði fyr­ir­tækin vera í eigu lands­manna og að fjár­mála­ráð­herra bæri ábyrgð á því hverjir sætu í stjórnum þeirra. Að hennar mati hefði valdið hins vegar í auknum mæli verið fært frá kjörnum full­trúum til emb­ætt­is­manna.

Nanna Margrét nefndi Isavia og Íslands­póst sér­stak­lega. Hún sagði öllum nema einum hafa verið skipt út úr stjórn Isavia á síð­asta ári og að sá eini sem hélt sæti sínu hefði verið til­nefndur af Viðreisn. Þá hefði full­trúi Við­reisnar hjá Íslands­pósti færst úr vara­stjórn í aðal­stjórn á sama tíma og öðrum hefði verið skipt út.

„Ótrúleg til­viljun að bara Við­reisn­ar­full­trú­arnir reynd­ust hæfir. Hver trúir því?“ sagði hún.

Þing­mað­ur­inn sagði Viðreisn gjarnan leggja áherslu á almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni en dró í efa að sú stefna birt­ist í fram­kvæmd rík­is­stjórn­ar­innar.

„Leik­ritið heitir Froða og frasar, frú for­seti. Viðreisn fer með aðal­hlut­verkið en hand­rit og leik­stjórn eru alger­lega í höndum emb­ætt­is­manna,“ sagði Nanna Margrét.

Hægt er að nálg­ast svar Daða í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ