Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

„Vöndum okkur“

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Elliði Vign­is­son er bæj­ar­stjóri á lands­byggð­inni Mynd: Samsett

Ummæli Elliða Vign­is­sonar, bæj­ar­stjóra Ölfuss, um inn­flytj­endur og múslima komu til umræðu á Alþingi í dag þegar tveir þing­menn ræddu mál­efni útlend­inga undir liðnum störf þings­ins.

Elliði hafði áður skrifað á Facebook að óheftur straumur inn­flytj­enda, sér­stak­lega múslima, væri að valda skaða. Hann sagði síðar í við­tali á Bylgj­unni að gagn­rýni hans bein­ist að inn­flytj­enda­stefnu og hug­myndum sem byggi á trú­ar­legum kreddum eða venjum sem gangi gegn jafn­rétti og frelsi.

Ása Berglind Hjálm­ars­dóttir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, nefndi Elliða sér­stak­lega á nafn í ræðu sinni og gagn­rýndi orð hans harð­lega. Eiríkur Björn Björg­vins­son, þing­maður Við­reisnar, nefndi bæj­ar­stjór­ann ekki á nafn en ræddi orð­ræðu þar sem heilir hópar útlend­inga eru settir undir sama hatt.

Segir ekki rétt að beina aðgerðum að heilum samfélagshópum

Eiríkur sagði mik­il­vægt að umræða um mál­efni útlend­inga gæti farið fram af yfir­vegun og ábyrgð. Stjórn­völd þyrftu að hafa stjórn á landa­mærum og bregð­ast við þegar reglur væru brotnar en forð­ast ætti alhæf­ingar um fólk vegna upp­runa þess.

„Það er mik­il­vægt að geta rætt þessi mál af yfir­vegun, ábyrgð og virð­ingu án þess að alhæfa eða setja t.d. alla útlend­inga undir sama hatt,“ sagði Eiríkur.

Hann lagði áherslu á að útlend­ingar væru ekki eins­leitur hópur og að margir þeirra legðu mikið af mörkum til íslensks sam­fé­lags. Greina þyrfti á milli þeirra sem fylgdu lögum og þeirra sem brytu þau og beina aðgerðum stjórn­valda að raun­veru­legum vanda­málum.

„Ábyrg stefna felst í því að beina aðgerðum að raun­veru­legri áhættu en ekki heilu sam­fé­lags­hóp­unum,“ sagði Eiríkur.

Hann sagði jafn­framt að skipu­lögð glæp­a­starf­semi væri sér­stakt við­fangs­efni stjórn­valda og að verið væri að efla lög­gæslu, alþjóð­legt sam­starf og við­brögð gagn­vart þeim sem mis­not­uðu kerfið eða ógn­uðu öryggi almenn­ings.

Ása vitnaði beint í Elliða

Ása Berglind gekk lengra og tengdi umræð­una beint við ummæli bæj­ar­stjór­ans í Ölfusi. Hún sagð­ist nýkomin frá París þar sem evr­ópskir jafn­að­ar­menn hefðu rætt upp­gang stjórn­mála­afla sem reyndu að ná mark­miðum sínum með sundr­ungu og árásum á minni­hluta­hópa.

Hún sagð­ist sjá merki um sam­bæri­lega þróun hér á landi og gagn­rýndi bæði Mið­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn í því sam­hengi.

„Það að segja, með leyfi for­seta: „Óheftur straumur inn­flytj­enda, sér­stak­lega múslima, er að valda skaða“, líkt og bæj­ar­stjóri Ölfuss gerði, er ekki í lagi,“ sagði Ása.

Hún spurði jafn­framt hvaða fólk Elliði hefði í raun átt við með ummælum sínum og nefndi meðal ann­ars Jasminu Vajzovic sem hefur sjálf gagn­rýnt ummæli Elliða.

Ása sagði kjörna full­trúa og æðstu stjórn­endur bera ábyrgð á því að byggja sam­fé­lagið upp í stað þess að gera til­tekna hópa tor­tryggi­lega.

„Það er eðli­legt að gera þá kröfu til okkar að geta rætt um sam­fé­lags­leg vanda­mál án þess að gera heilan trú­ar­hóp tor­tryggi­legan,“ sagði Ása.

Í lok ræðu sinnar vís­aði hún til 233. gr. almennra hegn­ing­ar­laga og minnti á ákvæði um opin­ber ummæli sem bein­ast gegn ein­stak­lingum eða hópum vegna til­tek­inna per­sónu­þátta.

„Vöndum okkur,“ sagði Ása að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pólitík

Pólitík

Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

„Áfram, forsetinn minn. Ekki vera huglaus.“
  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum

  • Pólitík

    23 störf hverfa hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ